Þarf að brjóta upp tæknirisana?

Í hlað­varp­inu Land of the Giants er fjallað um risa­fyr­ir­tækin í tækni­geir­anum sem móta staf­rænt líf okkar og því velt upp hvort völd sumra þeirra séu orðin of mikil. Er kom­inn tími á að brjóta upp veldin?

Þarf að brjóta upp tæknirisana?
Land risanna Í þátt­unum hefur verið fjallað ítar­lega um Amazon, Google, Netflix, Apple og Facebook, auk ann­ars.

Banda­rísk stór­fyr­ir­tæki í tækni­geir­anum snerta líf okkar flestra á hverjum ein­asta degi. Amazon, Google, Netflix, Apple og Meta/Facebook eru hreint óhemju fyr­ir­ferð­ar­mikil í snjall­væddum heimi.

Í hlað­varps­þátt­unum Land of the Giants, sem hófu göngu sína árið 2019, hafa blaða­menn rýnt í sögu og stefnu áður­nefndra fyr­ir­tækja og hvernig þau hafa skotið keppi­nautum á sínu sviði ref fyrir rass, svona að mestu leyti.

Und­ir­liggj­andi í nálgun þeirra sem rýna í fyr­ir­tækin er það, sem margir ugg­laust velta fyrir sér, hvort þau séu orðin of stór, of umlykj­andi, of valda­mikil. 

Í umfjöll­un­inni um Amazon var kast­ljós­inu til dæmis beint að því hvernig fyr­ir­tækið not­færir sér mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að fram­leiða og selja eigin vörur í sam­keppni við þá fjöl­mörgu fram­leið­endur og smá­sala sem háðir eru Amazon um vett­vang til að selja vörur sínar. 

Er fjallað var um Google var meðal ann­ars rýnt í hvort það væri mögu­legt að vafra um netið án þess að það skil­aði beint eða óbeint krónum í vas­ann hjá Google. Nið­ur­staðan: Það er hæpið.

Sjöunda og nýjasta ser­ían af Land of the Giants fjallar svo um stefnu­móta­for­rit á borð við Tinder, sem margir þekkja. Á yfir­borð­inu er nokkur sam­keppni í þeim bransa vest­an­hafs, og alltaf eitt­hvað nýtt að bæt­ast við.

Þegar mark­að­ur­inn er skoð­aður nánar kemur hins vegar í ljós að flest mest not­uðu ástar-öppin eru í eigu sömu aðila, Match.com-veld­is­ins, sem hefur hjálpað fólki að finna ást­ina (eða eitt­hvað í þá átt­ina) allt frá árdögum inter­nets­ins og grætt morð­fjár á meðan.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár