1108. spurningaþraut: Hver skrifaði ritgerð um Hegel og Machiavelli?

1108. spurningaþraut: Hver skrifaði ritgerð um Hegel og Machiavelli?

Fyrri aukaspurning:

Skjáskotið hér að ofan er úr Óskarsverðlaunamynd frá í fyrra. Reyndar komu verðaunin til handa þessari mynd allmikið á óvart. Hvað heitir myndin?

***

Aðalspurningar:

1.  Frá hvaða landi er rithöfundurinn Sofi Oksanen sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókina Hreinsun fyrir um áratug?

2.  Brokey er ein stærsta eyjan við Ísland. Í hvaða firði, flóa, vík eða vogi er Brokey?

3.  Hann fæddist 1977, lauk heimspekinámi með ritgerð um Machiavelli og Hegel, en tók síðan meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Hann hóf þá störf í fjármálaráðuneytinu í landi sínu. Nokkrum árum seinna keypti hann sig lausan frá því starfi og fór að vinna í stórum alþjóðlegum banka. Hann náði miklum frama í bankanum — og varð milljónamæringur á því að annast kaup matvælarisans Nestle á tiltekinni tegund barnadrykkja. Árið 2012 hætti hann í bankanum og fór að fást við stjórnmál í landi sínu. Hvað heitir hann?

4.  Hver er frægasti málarinn sem hefur málað sólblóm?

5.  Hvaða þingkona Sjálfstæðisflokksins verður í fæðingarorlofi næstu mánuði?

6.  Hver var borgarstjóri í Reykjavík á undan Degi B. Eggertssyni?

7.  Hvernig er allra innsti hringurinn á píluspjaldi á litinn?

8.  Fisktegund ein, ekki alveg óskyld þorski, er nokkuð nýtt hér á landi. Hún heitir sama nafni og hlutar í augum okkar. Hvað er hún sem sé kölluð?

9.  Hvað vantar í þessa nafnaröð miðja: Stanley Baldwin, Neville Chamberlain, Clemens Atlee, Anthony Eden?

10.  Í hvaða landi er héraðið Ontario?

***

Seinni aukaspurning:

Hvað ríki nær yfir mestan hluta myndarinnar hér að neðan?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Finnlandi.

2.  Breiðafirði. Hún er reyndar við mynni Hvammsfjarðar svo ætli ég myndi ekki gefa rétt fyrir Hvammsfjörð líka.

3.  Macron.

4.  Van Gogh.

5.  Hildur Sverrisdóttir.

6.  Jón Gnarr.

7.  Rauður.

8. Keila.

9.  Winston Churchill. Þetta er röð breska forsætisráðherra frá 1935-1957.

10.  Kanada.

***

Svör við aukaspurningum:

Skjáskotið er úr kvikmyndinni CODA sem fékk Óskarsverðlaun sem besta myndin í fyrra.

Á neðri myndinni má sjá Eistland.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
6
Innlent

Fleiri til­vik og há­ar upp­hæð­ir í fjár­drátt­ar­máli lög­manns­ins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
6
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár