1109. spurningaþraut: „Dómararnir eru komnir upp með höndina“

1109. spurningaþraut: „Dómararnir eru komnir upp með höndina“

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hvaða þjóð má ætla að karl­inn hér að ofan sé? Og þá er ekki átt við þjóð sem rúm­ast innan landamæra eins ríkis.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Teheran?

2.  Jón for­seti var fyrsta skipið af ákveð­inni teg­und sem smíðað var sér­stak­lega fyrir Íslend­inga. Jón for­seti var ... hvernig skip?

3.  Madel­eine Albright, Hillary Clinton og Condoleezza Rice hafa allar gegnt einu og sama starf­inu. Hvaða starf er það?

4.  Hvað heitir íslenski ljós­mynd­ar­inn sem er sér­stak­lega kunnur fyrir magn­aðar myndir sínar frá Græn­landi, oftar en ekki svart­hvítar?

5.  Hvar á Íslandi hefur íþrótta­fé­lagið Einherji bæki­stöðvar?

6.  Hvers konar dýr eru kameljón?

7.  „Dóm­ar­arnir eru komnir upp með hönd­ina.“ Hvað er á seyði þegar hand­bolta­lýsandi í sjón­varp­inu lætur þessi orð falla?

8.  Í langan tíma kringum síð­ustu alda­mót var Agnes Braga­dóttir meðal kunn­ustu full­trúa ákveð­innar starfs­stéttar. Agnes var þá ... hvað?

9.  Fjór­menn­ing­arnir Roger Waters, Rick Wright, David Gilmour og Nick Mason voru lengst af sam­verka­menn í frægri hljóm­sveit. Hvað hét eða heitir hún?

10.  Hver sagði nýlega í blaða­við­tali eftir að hafa kynnst bæði lista­mönnum og þing­mönnum: „Ég hef að vísu verið inn­an um lista­menn alla ævi en aldrei kynnst í þeirra röðum öðrum eins príma­donn­um og at­hygl­is­fíkl­um og sum­ir þing­menn eru óneit­an­lega.“

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni framan á DV fyrir tals­verðu síðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Íran.

2.  Togari.

3.  Utan­rík­is­ráð­herrar Banda­ríkj­anna.

4.  Ragnar Axelsson, RAX.

5.  Vopna­firði.

6.  Eðlur.

7.  Liðið sem er með bolt­ann verður að fara að skjóta á mark fyrr en síðar.

8.  Blaða­maður.

9.  Pink Floyd.

10.  Guð­mundur Andri Thorsson rit­höf­undur og fyrrum þing­maður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Túaregi en sú þjóð er af ber­bískum upp­runa og býr í mörgum löndum í og við Sahara-eyði­mörk­ina. Túaregar eru auð­þekktir af bláa litnum.

Á neðri mynd­inni er Alma Möller, núver­andi land­læknir.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár