1108. spurningaþraut: Hver skrifaði ritgerð um Hegel og Machiavelli?

1108. spurningaþraut: Hver skrifaði ritgerð um Hegel og Machiavelli?

Fyrri auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan er úr Ósk­arsverð­launa­mynd frá í fyrra. Reyndar komu verðaunin til handa þess­ari mynd all­mikið á óvart. Hvað heitir myndin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Frá hvaða landi er rit­höf­und­ur­inn Sofi Oksanen sem hlaut bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fyrir bók­ina Hreinsun fyrir um ára­tug?

2.  Brokey er ein stærsta eyjan við Ísland. Í hvaða firði, flóa, vík eða vogi er Brokey?

3.  Hann fædd­ist 1977, lauk heim­speki­námi með rit­gerð um Machiavelli og Hegel, en tók síðan meistara­gráðu í opin­berri stjórn­sýslu. Hann hóf þá störf í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í landi sínu. Nokkrum árum seinna keypti hann sig lausan frá því starfi og fór að vinna í stórum alþjóð­legum banka. Hann náði miklum frama í bank­anum — og varð millj­óna­mær­ingur á því að ann­ast kaup mat­væl­aris­ans Nestle á til­tek­inni teg­und barna­drykkja. Árið 2012 hætti hann í bank­anum og fór að fást við stjórn­mál í landi sínu. Hvað heitir hann?

4.  Hver er fræg­asti málar­inn sem hefur málað sól­blóm?

5.  Hvaða þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins verður í fæð­ing­ar­or­lofi næstu mán­uði?

6.  Hver var borg­ar­stjóri í Reykja­vík á undan Degi B. Egg­erts­syni?

7.  Hvernig er allra innsti hring­ur­inn á pílu­spjaldi á lit­inn?

8.  Fisk­teg­und ein, ekki alveg óskyld þorski, er nokkuð nýtt hér á landi. Hún heitir sama nafni og hlutar í augum okkar. Hvað er hún sem sé kölluð?

9.  Hvað vantar í þessa nafna­röð miðja: Stanley Baldwin, Neville Chamberlain, Clemens Atlee, Anthony Eden?

10.  Í hvaða landi er hér­aðið Ontario?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað ríki nær yfir mestan hluta mynd­ar­innar hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Finn­landi.

2.  Breiða­firði. Hún er reyndar við mynni Hvamms­fjarðar svo ætli ég myndi ekki gefa rétt fyrir Hvamms­fjörð líka.

3.  Macron.

4.  Van Gogh.

5.  Hildur Sverr­is­dóttir.

6.  Jón Gnarr.

7.  Rauður.

8. Keila.

9.  Winston Churchill. Þetta er röð breska for­sæt­is­ráð­herra frá 1935-1957.

10.  Kanada.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr kvik­mynd­inni CODA sem fékk Ósk­arsverð­laun sem besta myndin í fyrra.

Á neðri mynd­inni má sjá Eistland.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár