1107. spurningaþraut: Lönd kennd við höfuðáttir

1107. spurningaþraut:  Lönd kennd við höfuðáttir

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér er vöru­merki nýlegs fyr­ir­tækis. Það var stofnað 2003 og er nú hið verð­mætasta í heimi á sínu sviði. Hvaða fyr­ir­tæki er hér um að ræða?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða starfi er talið að Úlf­ljótur nokkur hafi gegnt fyrstur allra á Íslandi?

2.  Í hvaða bæ hefur íþrótta­fé­lagið Aft­ur­eld­ing aðsetur?

3.  Hvað þýðir orðið aft­ur­eld­ing?

4.  Í hvaða landi eru Bafta-verð­launin veitt?

5.  Þung­arokks­plata frá 1980 er senni­lega næst­sölu­hæsta plata allra tíma. Hún er sögð hafa selst í 50 millj­ónum ein­taka. Hvaða þung­arokks­hljóm­sveit var þetta?

6.  En hvað hét platan?

7.  Gísli Snær Erlings­son var nýlega skip­aður yfir­maður til­tek­innar stofn­unar hér á landi. Hvaða stofn­unar?

8.  Sjö sjálf­stæð þjóð­ríki hafa aug­ljós nöfn höf­uð­átt­anna (norður-vestur-suður-austur) í nöfnum sínum. Til að fá stig þurf­iði að nefna sex þess­ara ríkja. Ef þið náið öllum sjö fáiði lár­við­ar­stig!

9.  Hvað hét, sam­kvæmt kirkju­legri hefð, fyrsti páf­inn í Róm?

10.  Æ síðan hefur páf­inn setið í Róm. En númer hvað er núver­andi páfi? Er hann númer 266 — 466 —  566 — eða jan­vel númer 666?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan fyrir miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lög­sögu­maður.

2.  Mos­fellsbæ.

3.  Dögun.  

4.  Bret­landi.

5.  AC/DC.

6.  Back in Black.

7.  Kvik­mynda­stofn­unar.

8.  Aust­ur­ríki, Norður Kórea, Suður Kórea, Norður Makedónía, Suður Súdan, Suður Afríka, Austur-Tímor. - Hvorki Ástralía né Noregur telj­ast með!

9.  Pétur.

10.  Hann er númer 266.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er vöru­merki Teslu.

Á neðri mynd­inni er gríska eyjan Ródos.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár