1106. spurningaþraut: Hvað át Gullbrá?

1106. spurningaþraut: Hvað át Gullbrá?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fugl er þar í fangi manns?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað var milli­nafn Elvisar Presley?

2.  Hvaða sterka áfeng­is­teg­und ber nafn sem þýðir í raun og veru „litla vatn“ í til­teknum tungu­mála­hópi?

3.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borgin í Ástralíu?

4.  En sú næst fjöl­menn­asta?

5.  En bittinú — hvað heitir þriðja fjöl­menn­asta borgin í Ástralíu?!

6.  Hvað át Gullbrá frá björn­unum þremur?

7.  Hvaða kallar Japanir land sitt?

8.  Árið 1940 hafði allt sam­band milli Banda­ríkj­anna og Þýska­lands rofnað vegna heim­styrj­ald­ar­innar sem þá var skollin á. Þýska Coca Cola-félagið fékk þá ekki lengur hrá­efni í svala­drykk­inn vin­sæla. Þá hóf félagið fram­leiðslu á sínum eigin svala­drykk og náði hann seinna miklum vin­sældum víða um heim, þ.á.m. hér. En þarna 1940 var efnt til sam­keppni meðal starfs­manna um nafn á nýja gos­drykk­inn. Starfs­mönn­unum var upp­álagt að sleppa ímynd­un­ar­afl­inu lausu. Sig­ur­veg­ari í keppn­inni stakk upp á að nefna drykk­inn ... hvað?

9.  Hvaða íslenska skáld­saga hefst á þessa leið: „Ég er afkom­andi hraustra, blá­eygðra vík­inga. Ég á ætt að telja til hirð­skálda og sig­ur­sælla kon­unga. Ég er Íslend­ingur. Nafn mitt er [XXX]. Ég er gam­all              nei nei

10.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Hvunn­dags­hetjan?

***

Auka­spurn­ing 2:

Hver er hljóm­sveitin á mynd­inni? Svo fáiði rokk­stig fyrir að þekkja nöfnin á ÖLLUM FJÓRUM.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aron.

2.  Vodka.

3.  Melbourne. Tilkynnt var með pompi og prakt í síð­asta mán­uði að hún væri orðin fjöl­menn­asta borg Ástralíu. Sjá hér!

4.  Sydney.

5.  Brisbane.

6.  Hafra­graut.

7.  Nippon.

8.  Fanta.

9.  Tómas Jónsson met­sölu­bók.

10.  Auður Haralds.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er albatross.

Á neðri mynd­inni er hljóm­sveitin Purrkur Pillnik: Einar Örn, Ásgeir Bragason, Friðrik Erlings­son og Bragi Ólafsson.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár