1105. spurningaþraut: Sjálfstæðismenn og Bucks Fizz

1105. spurningaþraut: Sjálfstæðismenn og Bucks Fizz

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu margir þing­menn sitja á Alþingi Íslend­inga?

2.  Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á nú stærsta þing­flokk­inn. Hversu margir eru Sjálf­stæð­is­menn á þingi (að með­töldum einum Mið­flokks­manni sem flokknum bætt­ist eftir síð­ustu kosn­ingar)? Hér má muna einum til eða frá.

3.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Tirana?

4.  Í hvaða sögum og bíó­myndum er Katniss Everdeen aðal­per­sóna?

5.  Í hvaða heims­álfu er mikil slétta sem kölluð er Pampas?

6.  Frá hvaða landi er fót­bolta­kapp­inn Erling Haaland?

7.  Hvað eiga þessir bresku tón­list­ar­menn og hljóm­sveitir sam­eig­in­legt (og aðeins þau): Sandie Shaw, Lulu, Brotherhood of Man, Bucks Fizz og Katrina and the Waves?

8.  „Í draumi sér­hvers manns er fall hans falið. / Þú ferð­ast gegnum dimman kynja­skóg / af blekk­ingum, sem brjóst þitt hefur alið / á bak við veru­leik­ans köldu ró.“ Hver orti þetta?

9.  Samvæmt gömlu tíma­tali, hvenær er þá lág­nætti?

10.  Eitt elsta menn­ing­ar­rit lands­ins sem enn kemur út hóf göngu síðan 1874 og er nú gefið út einu sinni á ári á vegum Hins íslenska þjóð­vina­fé­lags. Hvað nefn­ist tíma­ritið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

En úr hvaða bíó­mynd er þetta skjá­skot hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  63.

2.  Þeir eru 17 svo rétt er 16-18.

3.  Albaníu.

4.  Hung­ur­leik­unum, Hunger Games.

5.  Suður-Ameríku.

6.  Noregi.

7.  Þau hafa öll unnið Eurovision fyrir hönd Bret­lands.

8.  Steinn Steinarr.

9.  Um mið­nætti.

10.  Andvari.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efra skjá­skotið er úr King Kong frá 1933.

Það neðra er úr Silence of the Lambs.

Jodie Foster og Anthony Hopkins í Lamba­þögn­inni
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár