1104. spurningaþraut: Fámennasta ríkið í Asíu?

1104. spurningaþraut: Fámennasta ríkið í Asíu?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg er töluð Cockney-málýska?

2.  Í hvaða landi var Hồ Chí Minh for­seti 1945-1969?

3.  Hvar hefur þingið aðsetur í Stormont?

4.  Hvað er þriðja fjöl­menn­asta ríkið í Asíu?

5.  En hvað skyldi vera fámenn­asta sjálf­stæða ríkið í Asíu?

6.  Um pásk­ana birt­ist skyndi­lega köttur sem hafði horfið frá heim­ili sínu í Reykja­vík fyrir sex árum. Hvar fannst kött­ur­inn? 

7.  Hverjir bjuggu upp­haf­lega í Gósen­landi?

8.  Ingi­björg Isaksen er þing­flokks­maður hvaða flokks á Alþingi?

9.  Clarence nokkur Thomas lenti fyrir nokkrum vikum í vand­ræðum því upp komst að hann hafði þegið lúx­us­ferða­lög af auð­ugum vini sínum. Það þótti einkar óheppi­legt vegna starfa Thomas, en hann er ... hvað?

10.  Fyrir um 30 árum var Thomas skip­aður í þetta starf sitt. Sú skipan var þá þá mjög umdeild því þá var hann sak­aður um ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða konu má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  London.

2.  Víetnam.

3.  Á Norður-Írlandi.

4.  Indónesía.

5.  Brunei.

6.  Í Borg­ar­nesi.

7.  Ísra­els­menn, Hebrear í frá­sögn Gamla testa­ment­is­ins.

8.  Fram­sókn­ar­flokks­ins.

9.  Hæsta­rétt­ar­dóm­ari í Banda­ríkj­unum.

10.  Kyn­ferð­is­lega áreitni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er elgur.

Á seinni mynd­inni er Nicole Kidman, film­stjarna.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár