1103. spurningaþraut: Hvar er lengsta girðing í heimi?

1103. spurningaþraut: Hvar er lengsta girðing í heimi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „W Szczebrzeszynie chrząszcz brzmi w trzcinie.“ Þetta mun vera fræg fram­burð­ar­þraut í tungu­máli einu, ekki ósvipað og „Stebbi stóð á ströndu, var að troða strý ...“ á íslensku. En í hvaða tungu­máli?

2.  Í hvaða hafi eru Fiji-eyjar?

3.  Hvað kall­ast baró­meter á vand­aðri íslensku?

4.  Í hvernig formi er vatn þétt­ast: sem ís, vökvi eða gufa?

5.  Á milli hvaða svæða á land­inu er Bratta­brekka?

6.  Hver lék Michael Corleone í mynd­unum um Guð­föð­ur­inn?

7.  Í Mesópótamíu voru nokkur helstu og elstu menn­ing­ar­ríki forn­aldar. Mesópótamía sam­svarar nokkurn veg­inn hvaða nútíma­ríki?

8.  En hvað þýðir orðið Mesópótamía?

9.  Í hvaða landi er lengsta sam­fellda girð­ing í heimi, 5.816 kíló­metra löng?

10.  Hver er fjöl­menn­asta borgin á Indlandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pólsku.

2.  Kyrra­hafi.

3.  Loftvog.

4.  Vökvi.

5.  Borg­ar­fjarðar og Dalanna.

6.  Al Pacino.

7.  Írak.

8.  Landið milli ánna.

9.  Í Ástralíu. Hún á að halda villi­hundum, dingóum, frá suð­aust­ur­hluta lands­ins.

10.  Mumbaí, áður Bombay.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efra skjá­skotið er úr Vertigo eftir Hitchcock.

Neðri myndin er af Magnusi Carlsen stór­meist­ara í skák.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár