Ásmundur Friðriksson formaður starfshóps um nýjar leiðir til orkuöflunar

Enn bæt­ist í flokk mið­aldra, hvítra karl­manna sem ráð­herra umhverfis- og orku­mála hefur skipað til að leiða starfs­hópa á vegum ráðu­neyt­is­ins. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á að kanna mögu­leika til bættrar orku­öfl­unar.

Ásmundur Friðriksson formaður starfshóps um nýjar leiðir til orkuöflunar
Nýjar leiðir Ásmundur Frið­riks­son er for­maður starfs­hóps sem á að skoða mögu­leika á nýjum leiðum til orku­nýt­ingar, líkt og segir í til­kynn­ingu umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hefur skipað starfs­hóp til að kanna mögu­leika á að nota fleiri leiðir til bættrar orku­nýt­ingar og orku­öfl­unar. Á hóp­ur­inn að skoða orku­kosti sem standa utan ramma­á­ætl­unar, m.a. hvaða mögu­leikar felist í svoköll­uðum „smá­virkj­unum“ fyrir vatns­afl. Er þá vísað til þess að afl þeirra sé undir 10 MW þótt umhverf­is­á­hrif þeirra geti verið mikil. Einnig á hóp­ur­inn að skoða mögu­leika á sól­ar­orku­verum, sjáv­ar­falla­virkj­unum og vind­orku „á smærri skala“ auk fleiri atriða. 

Sá sem ráð­herra hefur valið til að leiða hóp­inn er Ásmundur Frið­riks­son þing­maður og sam­flokks­maður hans í Sjálf­stæð­is­flokknum. Í hópnum eiga einnig sæti þær Gunnlaug Helga Ásgeirs­dóttir sjáv­ar­út­vegs­fræð­ingur og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna.

Í frétta­skýr­ingu Heim­ild­ar­innar um miðjan febr­úar kom fram að ell­efu af fjórtán for­mönnum starfs­hópa, stjórna eða stýri­hópa sem Guð­laugur Þór hefur skipað frá því hann tók við ráðu­neyt­inu væru hvítir, mið­aldra karl­menn sem hefðu tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og/eða Samtök atvinnu­lífs­ins. Nú hafa tveir karlar sem falla undir þessa skil­grein­ingu bæst við; fyrr­nefndur Ásmundur og sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Árni Sig­fús­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ og borg­ar­stjóri í Reykja­vík, sem nýverið var skip­aður for­maður stýri­hóps sem vinna á til­lögur um fram­gang mála í Vest­manna­eyjum. 

Í til­kynn­ingu á vef umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins um hlut­verk starfs­hóps­ins sem Ásmundur leiðir er vísað í skýrslu um stöðu og áskor­anir í orku­málum, svo­kall­aða græn­bók, sem kom út í mars í fyrra. Segir í til­kynn­ing­unni að sviðs­myndir skýrsl­unnar sýni fram á „mikla þörf fyrir orku­öflun“ á kom­andi ára­tugum „til að tryggja orku­ör­yggi lands­manna“ sem og til að mæta eft­ir­spurn sem kemur til vegna orku­skipta. 

„Starfs­hópnum hefur verið falið að vinna á þeim grunni og draga saman hvaða upp­lýs­ingar og þekk­ing sé þegar til staðar varð­andi aðra orku­kosti en þá sem fel­ast í vatns­afli (yfir 10 MW), jarð­varma og vindi. Þá á hann að kanna fýsi­leika og fram­boð, sem og að varpa ljósi á mögu­legar hindr­anir sem standa í vegi fyrir fram­þróun og hvaða leiðir séu færar til að orku­kost­irnir verði nýttir í meira mæli.“

Öfgafyllsta sviðsmyndin

Vil­hjálmur Egilsson gegndi for­mennsku í starfs­hópnum sem vann græn­bók­ina. Hann er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Vil­hjálmur Egilsson.

Í kjöl­far vinnu sinnar fyrir ráðu­neytið tók hann m.a. að sér kynn­ing­ar­mál fyrir fyr­ir­tæki sem vilja reisa vind­orku­ver á Íslandi.

Þær sviðs­myndir sem dregnar voru upp i græn­bók­inni og störf Vil­hjálms í kjöl­far útgáfu skýrsl­unnar, hafa verið gagn­rýnd, m.a. af Orra Páli Jóhanns­syni, þing­flokks­for­manni Vinstri grænna. Hann sagði á alþingi síð­asta haust að það gæti ekki talist eðli­legt, undir nokkrum kring­um­stæðum, að for­maður starfs­hóps sem falið var að draga saman efni um stöðu orku­mála, tali fyrir öfga­fyllstu sviðs­mynd­inni úr skýrsl­unni, þá sem kalli á mesta orku­öflun. „Nú les maður og heyrir í fjöl­miðlum að for­maður téðs starfs­hóps gangi erinda fjög­urra fyr­ir­tækja sem hafa uppi stór­tæk vind­orku­á­form, og tali fyrir þeirri sviðs­mynd úr stöðu­skýrsl­unni sem gengur frek­leg­ast fram eins og hún sé hinn eini rétti sann­leikur.“

Sviðs­myndin sem Vil­hjálmur hefur haldið á lofti gerir ráð fyrir ríf­lega tvö­földun raf­orku­fram­leiðslu Íslands til árs­ins 2040. 

Starfs­hópur Ásmundar á að skila til­lögu til ráð­herra fyrir 1. októ­ber á þessu ári.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tóti Steingríms skrifaði
    Vesalings fólkið sem þarf að vinna með fíflinu.
    0
  • Hann verður að passa vel uppá akstursdagbókina sína í þessu djobbi.
    4
  • Hann verður að passa vel uppá akstursdagbókina sína í þessu djobbi.
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Hvað hefur Ásmundur Friðriksson til brunns að bera til að leiða slíka nefnd?

    Að mínu mati nákvæmlega ekki neitt. Það er hins vegar fjöldi manna af báðum kynjum á lausu sem gæti innt slíkt starf af hendi með góðum árangri.

    Enn einu sinni verðum við vitni að vanhæfni og blygðunarlausri spillingu af hálfu ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
    6
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Hann er með bílpróf og þaulvanur ferðalangur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár