„Það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæðara viðhorf“

Heil­brigð­is­ráð­herra sat fyrir svörum á Alþingi í dag en hann var meðal ann­ars spurður út í biðlista eftir grein­ingum barna. Hann sagði að stjórn­völd væru raun­veru­lega að takast á við stöð­una og að þau vildu svo sann­ar­lega að börnin og allir þeir sem þurfa á þess­ari þjón­ustu og grein­ingu að halda þyrftu ekki að bíða of lengi.

„Það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæðara viðhorf“
Lítið talað um krafta­verkin Heil­brigð­is­ráð­herra segir að stað­reyndin sé sú að lítið sé talað um þau krafta­verk sem unnin eru á hverjum ein­asta degi í heil­brigð­is­kerf­inu. „Megum við missa okkur þangað að fara að hugsa að þetta sé er orðið gott? Nei.“ Mynd: Bára Huld Beck

Heil­brigð­is­mál voru rædd í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra sagði að raun­veru­lega væri verið að gera mjög margt til að ná niður biðlistum. „Það er stað­reynd og það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæð­ara við­horf gagn­vart þeim sem eru að djöfl­ast í þessu alla daga,“ sagði hann. 

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata var einn þeirra sem beindi fyr­ir­spurn sinni að ráð­herra en hann vitn­aði í grein á Vísi frá því í gær sem fjall­aði um geð­heil­brigð­is­þjón­ustu og grein­ingar barna en þar sagði að biðlisti hefði tæp­lega tvö­fald­ast. 

Björn Leví„Hvað þarf til?“ spurði þing­maður Pírata.

„Þar er sagt að það skipti máli að börnin fái þjón­ustu sem fyrst og ekki skipti máli hversu gömul þau séu, börnin geti ekki beðið og séu börn í mjög stuttan tíma. Það skiptir máli að það sé talað um snemmtæka íhlutun en vænt­an­lega myndi það skipta máli að sinna í raun og veru snemmtækri íhlutun. Það er ekki nóg að segja bara að við þurfum á henni að halda heldur verður eitt­hvað að ger­ast. 

En biðlistar lengj­ast og ráð­herra talar og talar um hvað þurfi að gera, tækni og alls konar svo­leiðis, en biðlistar lengj­ast samt. Hvað þarf til? Hvar er í alvör­unni þrösk­uld­ur­inn sem er fyrir okkur í því að allt þetta sem þurfi að ger­ast ger­ist í raun og veru á þann hátt að biðlistar haldi ekki áfram að lengj­ast? Þetta er ekki bara þannig að þetta sé ein­hvern veg­inn vanda­mál á heims­vísu. Þetta er líka vanda­mál á þann hátt að hjúkr­un­ar­fræð­ingar til dæmis eru hér að fara ann­ars staðar í vinnu og koma ekki í heil­brigð­is­kerfið af því að launin eru ein­fald­lega ekki ásætt­an­leg miðað við ábyrgð. Allir sem maður talar við innan heil­brigð­is­kerf­is­ins eru þar, allir. Þeir segja: Tvö­faldið laun hjúkr­un­ar­fræð­inga og þetta er komið í lag á morgun. Því er þetta pen­inga­legt vanda­mál, ekki bara tækni­legt og fræði­legt og svo fram­vegis,“ sagði hann. 

Spurði Björn Leví Willum hvar þrösk­uld­arnir væru fyrir því að hægt væri að sinna heil­brigð­is­þjón­ustu á þann hátt að biðlistar hættu að lengj­ast.

Fjölmörg atriði koma til

Willum svar­aði og sagði að Björn Leví hefði komið með ágæt­is­til­lögu um að taka kjara­málin inn í heil­brigð­is­ráðu­neytið. „Það væri ágætt, þannig að maður hefði þetta bara allt á einni hendi. En þetta er flókið sam­spil á milli fjár­muna, eins og hátt­virtur þing­maður þekkir mjög vel úr störfum sínum í fjár­laga­nefnd, en við þurfum líka fólk til að sinna þjón­ust­unni og þetta spilar saman.“

Varðandi biðlista þá sagði hann að þar væru fjöl­mörg atriði sem kæmu til. „Til­vís­unum hefur einnig fjölgað og við höfum reynt að leysa þetta í svona til­vís­un­ar­kerfi. Það vaknar upp, getum við kallað, grunur um að það sé ADHD eða röskun á ein­hverfu­rófi, svo ég taki dæmi og þá þarf að hafa í huga að stundum er til­vís­unum vísað frá eða nið­ur­staðan verður önnur grein­ing. Þetta er flókið. Við erum að efl­ast í þessu. Við erum líka búin að breyta skipu­lag­inu. Við erum búin að fjölga starfs­fólk­inu í heilsu­gæsl­unni. Við höfum nýverið útvi­stað samn­ingum, meðal ann­ars til sjálf­stætt starf­andi aðila, og við erum búin að útvista samn­ingum til Janusar heilsu­efl­ingar sem er að vinna með end­ur­hæf­ingu, þannig að við erum að reyna að leita allra leiða til að vinna á þessum biðlistum. Við erum í stöð­ugu sam­tali við meðal ann­ars sam­tökin og við erum að hefja græn­bók­ar­vinnu til að ná kannski betri sýn á það hvernig biðlist­inn kemur til. Hann er ekki raun­veru­lega svona langur,“ sagði hann. 

Biðlistinn það langur að fólk gefst upp

Björn Leví tók undir með ráð­herr­anum og sagði að biðlist­inn væri í raun og veru ekki svona langur en hann væri samt það langur að fólk gæf­ist upp og kærði sjálft sig til barna­verndar. 

„Það er málið sem ég var að tala um. Það var málið sem ég var að vísa í, til að kom­ast í grein­ingu. Það var það sem var fjallað um í frétt­inni sem ég vís­aði til í fyrri spurn­ingu minni. Ég heyri það sem ráð­herra segir en ég sé ekki áhrifin af því, ég sé ekki ráð­herra koma og segja: „Þetta hérna er vand­inn. Við erum að gera þetta núna og áhrifin af því koma í ljós eftir hálft ár af því að þá erum við búin að ná að þjálfa upp mann­skap­inn sem getur tæklað áskor­un­ina sem við erum með í biðlistum til þess að koma fólki á rétta staði.“ Það er engin svo­leiðis áætlun í gangi sem ég sé. Ég sé bara: „Við erum að reyna að útvista hinu og þessu, senda fólk hingað og þangað, við vitum ekk­ert hvað það kostar, vitum ekk­ert hvaða áhrif það hefur og biðlistar lengj­ast á meðan“,“ sagði Björn Leví. 

Raunverulega verið að gera mjög margt

Willum Þór sagði í kjöl­farið að stjórn­völd væru raun­veru­lega að takast á við þessa stöðu og að þau vildu svo sann­ar­lega að börnin og allir þeir sem þurfa á þess­ari þjón­ustu og grein­ingu að halda þyrftu ekki að bíða of lengi. 

„Þess vegna þurfum við að greina mjög vel list­ann. Við fórum í skipu­lags­breyt­ingar, sem hátt­virtur þing­maður þekkir mjög vel, um að setja á fót geð­heilsu­m­ið­stöð barna. Við fjölg­uðum sér­fræð­ingum og núna er heilsu­gæslan, sem heldur heild­stætt utan um þetta og er að horfa inn í þetta til að nýta þá auka­fjár­muni sem við settum til heilsu­gæsl­unnar til að takast á við þetta, inn í þessar skipu­lags­breyt­ingar, þ.e.a.s. já, við getum fengið aðstoð ann­ars staðar frá til þess að styðja við það að ná niður biðlistum. Þannig að það er raun­veru­lega verið að gera mjög margt einmitt til að kljást við þetta verk­efni. Það er stað­reynd og það væri kannski allt í lagi öðru hvoru að við tækjum upp aðeins jákvæð­ara við­horf gagn­vart þeim sem eru að djöfl­ast í þessu alla daga,“ sagði hann. 

Fólk flýr land

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins beindi fyr­ir­spurnum sínum einnig að heil­brigð­is­ráð­herra. 

„Fólk er að flýja land með heyrn­ar­laus börn af því það fær ekki þjón­ustu, flýja land. Við erum ekki að tala um eldri borg­ara sem eru þarna undir í þessum grein­ingum. Við erum að tala um konur, og karla líka, á besta aldri sem er að grein­ast allt of seint með sjúk­dóma sem hefði verið hægt að lækna en eru greindir þegar þeir eru komnir á fjórða stig og ólækn­andi. Við getum ekki sætt okkur við þetta og við eigum ekki að sætta okkur við það,“ sagði hann meðal ann­ars og spurði ráð­herr­ann hvernig hann ætl­aði að leysa málið. 

„Við getum ekki sætt okkur við þetta“Guð­mundur Ingi segir að ekki sé hægt að sætta sig við lélega þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu.

Tölum lítið um kraftaverkin í heilbrigðiskerfinu

Í svari Willums sagði hann að auð­vitað yrði að halda aðeins athygl­inni á því hvað verið væri að takast á við. 

„Erum við með gott heil­brigð­is­kerfi? Já, við erum með fram­úr­skar­andi heil­brigð­is­kerfi. Er mikið álag? Já, það er mikið álag og er búið að vera við­var­andi álag. Er þetta ein­stakt í heim­inum, það sem við erum að kljást við, vax­andi þörf fyrir fleira fólk til að sinna þjón­ust­unni, fleiri leg­u­rými, öfl­ugri snemm­grein­ingar? Nei, það er ekki ein­stakt og við erum að reyna að vinna með það. Stað­reyndin er hins vegar sú að við erum lítið að tala um þau krafta­verk sem eru unnin á hverjum ein­asta degi í okkar heil­brigð­is­kerfi. Megum við missa okkur þangað að fara að hugsa að þetta sé er orðið gott? Nei,“ sagði hann. 

Hann sagð­ist jafn­framt taka undir með Guðmundi Inga. „Við verðum auð­vitað að vinna og gera allt sem við getum til þess að efla snemm­grein­ingar, for­virkar aðgerðir, nýta tækn­ina, fjölga fólki í námi og styrkja og styðja öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi sem er fyrir, vegna þess að það er risa­á­skorun að halda í öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi. Fer eitt­hvað úrskeiðis, því miður, og er það við­kvæmt? Já, það er það og maður hefur auð­vitað fulla samúð með því í þeim til­vikum þegar það ger­ist.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Dæmigert svar framsóknarmanns. Staðreyndin er sú að það er enginn að argast út í fólkið sem vinnur kraftaverk innan heilbrigðiskerfisins á hverjum degi heldur beinist gagnrýnin að aðstöðunni sem þeim er sköpuð eða ekki sköpuð af stjórnvöldum til að vinna þau.
    0
  • IJ
    Ingibjörg Jónasdóttir skrifaði
    Síðan hvenær varð Guðmundur Ingi Guðbrandsson þingflokksformaður Flokks fólksins?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár