„Hætt við að einhverjir hugsi aftur til flóðanna 1974“

Verið er að rýma tugi húsa í Nes­kaup­stað eftir að snjó­flóð féll á hús þar í morgun. Ekki urðu alvar­lega slys á fólki en ein­hverjir eru skrám­aðir. Flóðið féll þar sem síð­asti varn­ar­garð­ur­inn í röð varn­ar­mann­virkja fyrir bæinn á að rísa.

„Hætt við að einhverjir hugsi aftur til flóðanna 1974“
Verður að klára verkið Jón Björn Hákon­ars­son bæj­ar­stjóri í Fjarða­byggð segir flóðið í morgun sýna mik­il­vægi þess að ráð­ist verði hið fyrsta í að klára upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja fyrir ofan byggð­ina í Nes­kaup­stað.

Verið er að rýma að minnsta kosti sjö götur í Nes­kaup­stað vegna snjó­flóða­hættu, eftir að snjó­flóð féll á fjög­urra íbúða hús í göt­unni Starmýri í morgun. Um er að ræða götur í Mýra­hverfi og hluta af Bakka­hverfi. Ekki urðu telj­andi slys á fólki í flóð­inu en ein­hverjir íbúa húss­ins sem flóðið féll á eru með skrámur, einkum eftir gler­brot.

Jón Björn Hákon­ar­son bæj­ar­stjóri Fjarð­ar­byggðar segir að verið sé að rýma reiti 16 og 17, og að hluta til reit 18. Hann hafi ekki nákvæma tölu á hús­unum sem um ræðir að svo komnu máli en þau séu talin í tugum, í það minnsta fjöru­tíu hús. Meðal þeirra húsa sem eru í nefndum reitum er Fjórð­ungs­sjúkra­húsið á Nes­kaup­stað en að sögn Jóns Björns er það þó ekki talið í hættu, það sé utan þess svæðis þar sem talin er snjó­flóða­hætta. „Við erum að rýma þessi hús, björg­un­ar­sveitin fer hús úr húsi. Auðvitað eru ein­hverjir farnir og við biðjum fólk á rým­ing­ar­svæð­inu, sem hefur ekki farið í fjölda­hjálp­ar­stöð í Egilsbúð heldur eitt­hvað annað, að hringja í 1717, síma Rauða kross­ins, og skrá sig þar.“

Moksnjóar enn fyrir austan

Enn moksnjóar á Norð­firði og bætir í. Samkvæmt veð­ur­spá mun snjóa eitt­hvað fram eftir degi. Ófært er fyrir smærri bíla þó að breyttir bílar kom­ist um. Þannig verður fólk að bíða eftir því að fá aðstoð við að kom­ast úr húsum sínum ef þannig háttar. Snjó­ruðn­ings­tæki eru að störfum í bænum, í þeim götum sem verið er að rýma, til að auð­velda rým­ing­una. Stefán Þór Eysteins­son, for­maður bæj­ar­ráðs Fjarða­byggðar, býr á Norð­firði og segir gríð­ar­legan snjó í bænum. „Það er tölu­verð snjó­koma ennþá, ég sé á milli húsa núna en ekki mikið lengra en það.“

„Það þarf að ljúka upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja hér sem fyrst“
Jón Björn Hákon­ar­son
bæj­ar­stjóri Fjarð­ar­byggðar.

Fólk hefur verið beðið um að halda sig heima, skóla­haldi hefur verið aflýst í Fjarða­byggð allri í dag. „112 sendu út sms og biðl­uðu til fólks að halda sig heima,“ segir Stefán og bætir við hann telji að engin starf­semi sé í gangi í fyr­ir­tækjum í bænum að svo komnu máli.

Vekur hræðslu hjá íbúum

Fjöldi snjó­flóða féll í Norð­firði 20. des­em­ber árið 1974, þar af tvö í byggð. Í þeim lét­ust tólf manns en þrettán var bjargað eða komust af sjálfs­dáðum úr flóð­unum.  

Jón Björn seg­ist hafa hitt hluta af því fólki sem var í hús­inu sem flóðið féll á, það hafi verið komið niður í björg­un­ar­sveit­ar­hús þegar hann kom þangað. Spurður hvernig það hafi borið sig segir Jón Björn að þegar svona ger­ist fyllist fólk æðru­leysi og tak­ist á við hlut­ina saman. „Auðvitað er fólk skekið eftir svona, og auð­vitað er hætt við að ein­hverjir hugsi aftur til flóð­anna 1974. En á sama tíma erum við óskap­lega ánægð með að vera komin með þessa þrjá stóru varn­ar­garða sem verja auð­vitað lung­ann af byggð­inni. Sá fjórði á að koma fyrir ofan þetta svæði og það er ljóst að þörfin á honum er mikil. Það stendur þá bara á því að ríkið hleypi í þetta fjár­magni, sem auð­vitað er búið að inn­heimta með bruna­trygg­ingum lands­manna. Það þarf að ljúka upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja hér sem fyrst, eins og raunar víða ann­ars staðar.“

„Ég get sagt fyrir mitt leyti að þetta er ekki eitt­hvað sem ég átti von á að upp­lifa“
Stefán Þór Eysteins­son
for­maður bæj­ar­ráðs Fjarð­ar­byggðar og íbúi á Norð­firði.

Ofan­flóða­sjóður kynnti hönnun á síð­asta áfanga ofan­flóða­varna á Nes­kaup­stað fyrir um hálfum mán­uði síðan. Því má segja að hægt sé að ráð­ast í fram­kvæmd­ina, en hins vegar er ekki búið að tryggja til þess fjár­magn. „Ég held að þetta sýni bara hversu bráð­nauð­syn­legt er að ráð­ast í þessa fram­kvæmd sem allra, allra fyrst. Það er ekki eftir neinu að bíða, ég held að þetta sýni það svart á hvítu,“ segir Stefán.

Spurður hvernig fólki líði segir Stefán að staðan sé óþægi­leg. „Þetta auð­vitað vekur hræðslu og fyrir suma vekur þetta upp gamlar minn­ingar. Ég get sagt fyrir mitt leyti að þetta er ekki eitt­hvað sem ég átti von á að upp­lifa.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjóflóð í Neskaupstað

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár