Alcoa lét undan þrýstingi og borgar jafnvel tekjuskatt strax í ár

Allt stefnir í að Alcoa muni greiða tekju­skatt á Íslandi í ár. Það yrði þá í fyrsta sinn sem ríkið fengi skatt af hagn­aði álvers­ins á Reyð­ar­firði. Lengi vel leit út fyrir að sér­samn­ingar íslenskra stjórn­valda við Alcoa gerðu það að verkum að félagið þyrfti aldrei að greiða skatt hér á landi. Gagnrýni og þrýst­ingur varð til þess að fyr­ir­tækið sjálft lét undan og kaus að greiða hér skatt.

Alcoa lét undan þrýstingi og borgar jafnvel tekjuskatt strax í ár

Álver Alcoa við Reyð­ar­fjörð, sem hóf starf­semi árið 2007, var og er ein stærsta erlenda fjár­fest­ingin sem komið hefur inn í íslenskt atvinnu­líf, eða í kringum 230 millj­arða króna. Fjár­fest­ingin virð­ist þó hafa marg­borgað sig enda hefur Alcoa ítrekað stært sig af því að álverið hér á landi sé því mik­il­væg tekju­lind, ekki síst vegna hag­stæðra samn­inga sem gerðir voru við stjórn­völd hér á landi, bæði í gegnum raf­orku­samn­ing við Lands­virkjun og eins með sér­stökum íviln­andi fjár­fest­inga­samn­ingi við íslenska ríkið.

Í árs­reikn­ingi Alcoa International fyrir ára­tug síðan sagði til að mynda að „hag­stætt orku­verð“ á Íslandi hafi gert það að verkum að álverið við Reyð­ar­fjörð sé það álver fyr­ir­tæk­is­ins sem skili fyr­ir­tæk­inu einna mestum hagn­aði á heims­vísu, en Alcoa starf­rækir hátt í tutt­ugu álver í þremur heims­álfum.

„Ódýr orka og tækni­fram­farir hafa leitt til þess að bræðslur okkar í Noregi og á Íslandi eru þær arð­bær­ustu í aðal­starf­semi okkar á …
Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Þetta er frábærlega skýr og upplýsandi umfjöllun. Takk Helgi. Ég vissi ekki að við hefðum svona lengi verið með vaxta-bókhalds-brellu-möguleikann. Eða þessi ívilnunarsamningur. Þvílíkur endemis afleikur íslenskra pólitíkusa! Víti til varnaðar í vindorku- og rafeldsneytiskapphlaupinu.
    0
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Hvaða fáráðlingar sömdu við Alcoa, er einhver þeirra enn á þingi?
    1
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Öll erlend fyrirtæki sem gerast sek um skattaundanskot eiga bara að fara! Það þarf að taka fyrir svona barbabrellur og undanskot og sækja þá til saka sem hafa hjálpað til við skattsvik.
    3
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þá vaknar auðvitað spurningin um önnur fyrirtæki í eigu erlendra aðila bæði stór og smá? Síðan er það eilífa mál sem er orkuverðið.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    "Gætum orðið ríkari en norðmenn."
    „Ef þú ættir gullnámu, og þú hefðir ekkert áhuga á gullinu sjálfu. Þú værir tilbúinn að gefa gullið frá þér, ef þú værir viss um að hafa góð laun við það að grafa gullið upp.“
    Þannig er íslenska aðferðin.
    https://www.visir.is/k/clp33438
    4
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það á að leggja veltuskatt á erlendu auðhringana, t.d. 20%. Þeir hafa sérhæft sig í að komast hjá bókhaldssköttum.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár