10 staðreyndir um Lindarhvol

Fréttir af mál­efnum Lind­ar­hvols hafa verið áber­andi í opin­berri umræðu und­an­farið. En um hvað snýst málið og hvers vegna er upp­nám á Alþingi vegna þess? Heim­ildin tók saman 10 stað­reyndir um Lind­ar­hvol.

10 staðreyndir um Lindarhvol
Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur sagt að ein­ungis geti verið ein skýrsla um hvert mál. Mynd: Geiri Pix / Pressphotos.biz

1Annaðist umsýslu og sölu eigna sem voru mörg hund­ruð millj­arða króna virði

Lind­­ar­hvoll ehf. var stofnað í apríl 2016 til að ann­ast umsýslu og sölu stöð­ug­leika­eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Um var að ræða eignir sem voru mörg hund­ruð millj­arða króna virði. Á meðal þess­ara eigna voru svo­kall­aðar fjár­sóps­eign­ir – eignir sem slitabú bank­anna héldu eftir og seldu en afrakstur þeirrar sölu rann í rík­is­sjóð.

2Félaginu slitið 2018

Í febr­úar 2018 var greint frá því að félagið hefði lokið hlut­verki sínu og yrði slit­ið. Alls nam and­virði þeirra stöð­ug­leika­eigna sem búið var að inn­leysa um 207,5 millj­örðum króna en frá­talin voru fram­lög vegna við­skipta­bank­anna Arion banka og Íslands­banka og aðrar óinn­leystar eign­ir. 

3

Barist um Klakka

Fjöl­miðlar fjöll­uðu ítrekað á þessu tíma­bili um ráð­staf­anir á eignum sem Lind­ar­hvoll hélt á. Sú sem vakti mesta tor­tryggni var sala á 17,7 pró­senta hlut í Klakka ehf., sem hét á árum áður Exista. Klakki átti á þeim tíma allt hlutafé í eigna­leigu­fyr­ir­tæk­inu Lykli. Félagið BLM fjár­­­fest­ing­­ar, dótt­­ur­­fé­lag vog­un­­ar­­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­­gement, átti hæsta til­­­boðið í hlut rík­­is­ins í Klakka en það hljóð­aði upp á 505 millj­­ón­ir króna. Félagið Ása­­flöt bauð 502 millj­­ónir í hlut­inn en þriðja til­­­boð­ið, sem hljóð­aði upp á 501 milljón króna, barst frá Frigus II í eigu Ágústs og Lýðs Guð­­munds­­sona, fyrr­ver­andi aðal­eig­enda Exista, og Sig­­urðar Val­týs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Exista. 

Eig­endur Frigusar voru mjög ósáttir við söl­una og lýstu því yfir að með henni hefði átt sér stað sala á eigum rík­is­ins til sér­val­inna aðila án þess að reynt hefði verið að hámarka sölu­and­virð­ið. 

Fjár­mála­ráðu­neytiðLind­­ar­hvoll ehf. var stofnað í apríl 2016 til að ann­ast umsýslu og sölu stöð­ug­leika­eigna sem ríkið fékk afhent í kjöl­far sam­komu­lags við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Um var að ræða eignir sem voru mörg hund­ruð millj­arða króna virði.

4

Stjórn Lindarhvols sendi frá sér yfirlýsingu

Stjórn Lind­ar­hvols sagði í yfir­lýs­ingu í nóv­em­ber 2016 að sala á hlut félags­ins í Klakka ehf. hefði að öllu leyti verið í sam­ræmi við reglur um starf­semi félags­ins og að gagn­sæi hefði að fullu verið tryggt í sölu­ferl­inu. Stjórnin gerði jafn­framt marg­hátt­aðar athuga­semdir við frétta­flutn­ing af söl­unni. 

5

Engar athugasemdir gerðar við rekstur Lindarhvols í niðurstöðum Ríkisendurskoðunar

Salan á hlut í Klakka var tekin til sér­stakrar umfjöll­unar í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar sem kom út í maí 2020. Í nið­ur­stöðum hennar sagði að eðli­lega hefði verið staðið að söl­unni. Í skýrsl­unni voru engar athuga­semdir gerðar við störf stjórnar Lind­ar­hvols eða rekstur en þar kom fram að stöð­ug­leika­fram­lagið hefði skilað 460 millj­örðum króna í rík­is­sjóð. Upp­haf­lega var ætlað að tekjur rík­is­ins vegna þess yrðu 384 millj­arðar króna. Þær voru því 76 millj­örðum krónum meiri en upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Í skýrsl­unni var ekk­ert fjallað um hverjar fjár­sóps­eign­irnar voru, hvernig þær voru seldar né hverjir fengu að kaupa þær.

6

Þjón­usta fyrir 80 millj­ónir króna

Í stjórn Lind­ar­hvols sátu Þór­hallur Ara­­son, for­­maður stjórnar og starfs­­maður í fjár­­­mála­ráðu­­neyt­in­u, Ása Ólafs­dótt­ir, með­­­stjórn­­andi, og Haukur C. Bene­diks­son, með­­­stjórn­­and­i. Sá sem sá um starf­semi Lind­ar­hvols utan stjórnar var lög­mað­ur­inn Steinar Þór Guð­geirs­son. Hann var meðal ann­ars pró­kúru­hafi félags­ins og Lind­ar­hvoll keypti lög­fræði­þjón­ustu frá fyr­ir­tæki hans, Íslögum ehf. Alls var keypt þjón­usta fyrir 80 millj­ónir króna án virð­is­auka­skatts af stofu Stein­ars og Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði sér­stak­lega hvort að það hefði átt að bjóða út þá þjón­ustu sem hún ann­að­ist. 

7

Beðið er dóms

For­svars­menn Frigusar telja sig hafa verið hlunn­farna af Lind­ar­hvoli, og þar með íslenska rík­inu, í við­skipt­unum og krefj­ast skaða­bóta upp á rúm­lega 650 millj­ónir króna. Mál­flutn­ingur fór fram í jan­úar síð­ast­liðnum og nú er beðið dóms í mál­inu. Í mál­flutn­ingnum kom meðal ann­ars fram að Kvika banki hefði leppað kauptil­boð Frigusar og í máli Ásgeirs Reyk­fjörðs Gylfa­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Kviku banka, fyrir dómi kom fram að það hefði meðal ann­ars verið gert vegna þess að stemn­ing­in í sam­fé­lag­inu hefði ver­ið þannig að ­bræð­urnir Ágúst og Lýður, sem oft­ast eru kenndir við Bakkavör, hefðu ekki getað átt eft­ir­lits­skylt fjár­mála­fyr­ir­tæki. 

8

Hin margumrædda greinargerð Sigurðar ekki birt opinberlega

Sveinn Ara­son, sem var rík­is­end­ur­skoð­andi á tíma­bil­inu 2008 til 2018, lýsti sig van­hæfan til að end­ur­skoða árs­reikn­ing Lind­ar­hvols. Ástæðan fyrir því að Sveinn ann­að­ist ekki end­ur­skoðun árs­reikn­inga Lind­ar­hvols var sú að bróðir hans, Þór­hallur Ara­son, var stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols. Sig­urður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, var feng­inn árið 2016 til að ann­ast end­ur­skoðun árs­reikn­ings­ins.

Vill birta grein­ar­gerð­inaSigurður Þórð­ar­son, fyrrum rík­is­end­ur­skoð­andi, hefur verið opin­skár með að hann telji að birta eigi grein­ar­gerð­ina. Fjöl­miðlar hafa ítrekað óskað eftir að fá hana afhenta án árang­urs.

Þegar Sveinn hætti sem rík­is­end­ur­skoð­andi og Skúli Eggert Þórð­ar­son tók við starf­inu var van­hæfið ekki lengur til staðar. Sigurður skil­aði Alþingi grein­ar­gerð um Lind­ar­hvol árið 2018. Grein­ar­gerðin hefur legið hjá for­sætis­nefnd Alþingis og Sigurður hefur verið opin­skár með að hann telji að hana eigi að birta. Fjöl­miðlar hafa ítrekað óskað eftir að fá hana afhenta án árang­urs. 

9

Vinnuskjal eða ekki?

For­sætis­nefnd lét vinna lög­fræði­á­lit um málið þar sem fram kemur að ekk­ert komi í veg fyrir að grein­ar­gerð Sigurðar verði birt. Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis, hefur neitað að birta grein­ar­gerð­ina og meðal ann­ars borið fyrir sig að umfjöllun um málið sé ekki lokið í nefnd­inni. Hann hefur sagt grein­ar­gerð­ina vera vinnu­skjal Rík­is­end­ur­skoð­unar og ekki heyra undir Alþingi.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði á Alþingi þegar hann var spurður í byrjun febr­úar síð­ast­lið­inn út í grein­ar­gerð­ina að hann liti þannig á málið að þegar Rík­is­end­ur­skoðun væri falið að skoða til­tekin mál­efni þá gæti bara verið ein skýrsla frá rík­is­end­ur­skoð­anda. „Sú skýrsla er komin út, hún var gefin út og það getur bara verið ein skýrsla í hverju máli. Það sem vísað er til er ekki end­an­leg skýrsla setts rík­is­end­ur­skoð­anda heldur ein­hvers konar skjal, sem ég kann ekki nán­ari deili á og hef ekki séð, og getur ekki hafa verið end­an­leg nið­ur­staða í mál­inu.“

10

Fær ekki að leggja fram fyrirspurn um innihald greinargerðarinnar

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, óskaði eftir því í byrjun mars að fá að leggja fram fyr­ir­spurn til for­seta þings­ins um inni­hald grein­ar­gerð­ar­innar um Lind­ar­hvol. Beiðni Jóhanns Páls var synjað með 28 atkvæðum gegn 14 á Alþingi þann 6. mars.  Þetta var í fyrsta sinn í 34 ár sem þing­maður þurfti að leggja það í dóm Al­þingis hvort hann fengi að bera fram spurn­ingar til þing­for­seta um til­tekið mál. 

Kjósa
83
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Frábær grein. Allar uplýingar sem komið hafa fram um málið ekki síst afstaða meirihluta alþingis benda til að hér telji einhverjir að það þurfi að fela. Því lengur sem þessi skýrsla er geymd sem leyndarmál þeim mun stekari verður grunur almennings að eitthvað alvarlegt standi í henni.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

10 staðreyndir

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár