Helgi Seljan tilefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Helgi Seljan er til­nefndur til blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrir frétta­skýr­ingar um Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­mann Íslands í Belarús, og náin tengsl hans við Alex­ander Lukashenko, ein­ræð­is­herra lands­ins. Tilkynnt var um tólf til­nefn­ingar í fjórum flokkum fyrr í dag. Verð­launin verða afhent eftir viku.

Helgi Seljan tilefndur fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins

Helgi Seljan er til­nefndur í flokknum rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins 2022 vegna frétta­skýr­inga um Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­mann Íslands í Belarús (Hvíta-Rúss­landi), og náin tengsl hans við Alex­ander Lukashenko, ein­ræð­is­herra lands­ins. Umfjöll­unin birt­ist í Stund­inni sem nú hefur sam­ein­ast Kjarn­anum í miðl­inum Heim­ild­inni þar sem Helgi starfar sem rann­sókn­ar­rit­stjóri.

Í umsögn dóm­nefndar blaða­manna­verð­laun­anna segir: „Rannsókn Helga leiddi meðal ann­ars í ljós að íslensk stjórn­völd áttu mikil sam­skipti við full­trúa Evr­ópu­ríkja eftir að Mos­hen­sky leit­aði lið­sinnis þeirra vegna boð­aðra refsi­að­gerða gegn honum en Mos­hen­sky er umfangs­mik­ill kaup­andi íslenskra sjáv­ar­af­urða. Í kjöl­far frétta­skýr­ing­anna var mál Mos­hen­skys tekið upp í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis og utan­rík­is­ráð­herra kall­aður fyrir nefnd­ina.“

Helgi hefur þrisvar hlotið blaða­manna­verð­laun Íslands og er þetta tíunda til­nefn­ingin hans til þeirra verð­launa.

Frétta­skýr­ingar Helga um Mos­hen­sky:

Dómnefnd verð­laun­anna hefur nú, viku fyrir afhend­ingu þeirra, birt til­nefn­ingar sínar í öllum fjórum flokkum verð­laun­anna: Viðtal árs­ins, umfjöllun árs­ins, rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins og Blaða­manna­verð­laun árs­ins. Tilkynnt verður föstu­dag­inn 10. mars hverjir hljóta verð­launin.

Til­nefn­ing­arnar allar eru sem hér segir: 

Viðtal ársins 2022

  • Lillý Val­gerður Pét­urs­dóttir, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir við­tal við Arnar Þór Ómarsson og Petru Bergrúnu Axels­dóttur, íbúa á Þórshöfn á Langa­nesi, um aðdrag­anda and­láts Berg­lindar Bjargar Arn­ar­dóttur, tveggja ára dóttur þeirra, úr Covid-19. Frásögn Arnars og Petru af miss­inum er átak­an­leg, en lýsir að auki brota­lömum í heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­byggð­inni. Blaða­mað­ur­inn nálg­ast erfitt við­fangs­efni af fágun og sýnir við­mæl­endum virð­ingu.
  • Sólveig Klara Ragn­ars­dóttir, RÚV. Fyrir við­tal við kynsegin ung­mennin Dag­björtu Heiðu Sig­þórs­dóttur, Iðunni Birnu Þór­is­dóttur, Alex Bergmann Ein­ars­son og for­eldra þeirra, um áreiti, ofbeldi og hvatn­ingu til sjálfs­skaða sem þau verða fyrir vegna kyn­upp­lif­ana sinna og útlits. Í við­tal­inu lýsa þau áreiti í net- og raun­heimum sem mjög hefur færst í auk­ana síð­ustu ár og afleið­ingum þess fyrir þau.
  • Þórarinn Þór­ar­ins­son, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við Hrafn Jök­uls­son þús­und­þjala­smið. Í við­tal­inu ræðir Hrafn um bar­daga sinn við Surtlu, mein sem fannst í honum mán­uði áður en við­talið var tekið og átti eftir að bera hann ofur­liði mán­uði síðar, og atburði árin áður en meinið fannst. Texti við­tals­ins er kraft­mik­ill og við­mæl­and­inn birt­ist les­and­anum ljós­lif­andi af lestr­inum. 

Umfjöllun ársins 2022

  • Hólm­fríður Gísla­dóttir, Hall­gerður Kolbrún E. Jóns­dóttir og Samúel Karl Ólason, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir Úkra­ínu­vakt­ina sem var virk nán­ast alla daga, frá morgni til kvölds, frá 24. febr­úar og út júní­mánuð. Á þeim tíma miðl­aði Vísir stöð­ugum straumi frétta og frétta­skýr­inga og var mið­ill­inn í sam­keppni við helstu frétta­stofur heims um að vera fyrstur að koma upp­lýs­ingum á fram­færi við les­endur sína. Með skjótu, öru og umfangs­miklu frétta­streymi sýndi Vísir yfir­burði net­mið­ils í frétta­flutn­ingi af yfir­stand­andi við­burði.
  • Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, RÚV. Fyrir vand­aða sjón­varps­um­fjöllun um flótta­fólk frá Sýrlandi sem sett­ist að á Íslandi í boði stjórn­valda sem svo­kall­aðir „kvótaflótta­menn“. Umfjöll­unin hefst í Beirút 2015. Fylgst með tveimur fjöl­skyldum frá komu þeirra til Íslands, gleð­inni yfir að kom­ast í skjól frá stríði til áskor­ana sem bíða í nýju landi. Umfjöll­unin gefur ein­staka inn­sýn í líf flótta­fólks og hvernig það tekst á við fram­andi sam­fé­lag eftir mis­mun­andi leiðum og með mis­mun­andi árangri.
  • Þor­steinn J. Vil­hjálms­son. Fyrir útvarps­þátta­röð á Rás 1 um kennar­ann og útvarps­mann­inn Skeggja Ásbjarn­ar­son og ofbeldi hans gegn börnum í Laug­ar­nes­skóla. Þætt­irnir voru meðal ann­ars byggðir á áhrifa­miklum við­tölum við brota­þola kenn­ar­ans en einnig við aðra sem báru honum vel sög­una. Í sex útvarps­þáttum tókst Þor­steini J. að draga upp ljós­lif­andi mynd af Skeggja, virð­ing­ar­stöðu hans í sam­fé­lag­inu og kyn­ferð­is­brotum gegn fjöl­mörgum drengjum, sem og and­legt ofbeldi gagn­vart stúlkum í skól­anum. 

Rannsóknarblaðamennska ársins 2022

  • Guðný Hall­dórs­dóttir og Ingvar Har­alds­son, Við­skipta­blað­inu. Fyrir frétta­skýr­ingar um styrkt­ar­sjóð og fjár­mál Sonju de Zorilla. Í frétta­skýr­ing­unum var hul­unni svipt af fjár­málum styrkt­ar­sjóðs Sonju sem sögð var rík­asta kona Íslands um síð­ustu alda­mót en fram að umfjöllun Ingvars og Guðnýjar höfðu tak­mark­aðar upp­lýs­ingar komið fram um fjár­mál sjóðs­ins. Frétta­skýr­ing­arnar vörp­uðu ljósi á skort á eft­ir­liti með góð­gerð­ar­sjóðum, bæði á Íslandi og í Banda­ríkj­unum, og að ekki hafa allar styrk­veit­ingar sjóðs­ins verið í sam­ræmi við lög, meðal ann­ars styrk­veit­ingar til aðila sem eru nákomnir sjóðs­stjórum styrkt­ar­sjóðs­ins.
  • Helgi Seljan, Stund­inni. Fyrir frétta­skýr­ingar um Alex­ander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­mann Íslands í Belarús (Hvíta-Rúss­landi), og náin tengsl hans við Alex­ander Lukashenko, ein­ræð­is­herra lands­ins. Rannsókn Helga leiddi meðal ann­ars í ljós að íslensk stjórn­völd áttu mikil sam­skipti við full­trúa Evr­ópu­ríkja eftir að Mos­hen­sky leit­aði lið­sinnis þeirra vegna boð­aðra refsi­að­gerða gegn honum en Mos­hen­sky er umfangs­mik­ill kaup­andi íslenskra sjáv­ar­af­urða. Í kjöl­far frétta­skýr­ing­anna var mál Mos­hen­skys tekið upp í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis og utan­rík­is­ráð­herra kall­aður fyrir nefnd­ina.
  • Tryggvi Aðal­björns­son, RÚV. Fyrir umfjöllun um örygg­is­mál ferj­unnar Baldurs. Ítarleg og upp­lýsandi umfjöllun um marg­vís­legar efa­semdir sem uppi voru um örygg­is­mál í Breiða­fjarð­ar­ferj­unni Baldri. Farið var í skoð­un­ar­ferð um skipið með fyrr­ver­andi skipa­eft­ir­lits­manni og rætt bæði við full­trúa stjórn­valda og full­trúa rekstr­ar­að­ila ferj­unnar. Viðtölin voru afhjúp­andi auk þess sem málið var vel sett fram sjón­rænt og sett í stærra sam­hengi við örygg­is­mál almennt og sam­göngu­mál lands­ins. 

Blaðamannaverðlaun ársins 2022

  • Bogi Ágústs­son, RÚV. Fyrir vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun af erlendum vett­vangi sem krist­all­ast í Heims­glugg­anum, frétta­skýr­ingum hans á Morg­un­vakt Rásar 1. Bogi beinir gjarnan sjónum að Norð­ur­lönd­unum og þá ekki síst Græn­landi og Færeyjum. Hann vekur áhuga hlust­enda og dýpkar þekk­ingu þeirra á umfjöll­un­ar­efn­inu með því að segja skemmti­lega frá og setja atburði í sam­hengi.
  • Sigrún Ósk Krist­jáns­dóttir, Stöð 2. Fyrir þætt­ina Leitin að upp­runanum sem sýndir voru á Stöð 2.Þeir sýndu þá til­finn­inga­ang­ist sem man­sal við ætt­leið­ingar frá Sri Lanka á 9. ára­tugnum veldur enn. Eftir ára­langa leit tókst Sigrúnu með dyggri hjálp Auri Hin­riks­son og DNA-prófa að leið­rétta og finna rétta líf­fræði­lega móður ungrar konu í leit að rótum sínum.
  • Sunna Val­gerð­ar­dóttir, RÚV/ frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir frétta­skýr­ingar á miðlum Sýnar og RÚV. Í Kompási varp­aði Sunna nýju ljósi á trú­arof­beldi innan sér­trú­ar­söfn­uða sem og ýmissa hópa sem fást við and­leg mál­efni, og afleið­ingar þess. Þá gaf þáttur hennar um ópíóíða­fíkn raunsanna mynd af heimi mor­fín­fíknar. Seinni hluta árs hafði Sunna umsjón með upp­bygg­ingu nýs frétta­skýr­inga­þáttar, Þetta helst, á Rás 1 þar sem efn­is­tök eru fjöl­þætt og oft nýstár­leg.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár