„Ekki sannfærður um að Sólveigu Önnu langi ekki í verkfallsaðgerðir“

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, seg­ist von­svik­inn með að slitnað hafi upp úr kjara­við­ræðum við Eflingu. Tilboð stétt­ar­fé­lags­ins hafi hins vegar verið með öllu óað­gengi­legt. Hann gefur í skyn að meiri vilji sé til hjá for­svars­mönnum Eflingar að hefja verk­falls­að­gerðir en að ná samn­ingum.

„Ekki sannfærður um að Sólveigu Önnu langi ekki í verkfallsaðgerðir“
Óþarfi Halldór Benjamín seg­ist telja slit Eflingar á kjar­við­ræðum óþarfar og um óskyn­sam­lega nálgun að ræða af hálfu Sól­veigar Önnu for­manns og samn­inga­nefnd­ar­innar. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Efling stétt­ar­fé­lag sleit í hádeg­inu kjara­við­ræðum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Efling hafði gert sam­tök­unum til­boð síð­ast­lið­inn sunnu­dag og gert það að skil­yrði fyrir áfram­hald­andi við­ræðum að það til­boð yrði grund­völlur þeirra. Það var hins vegar full­kom­lega óraun­hæft að mati Halldórs Benja­míns Þor­bergs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins.

„Ef til­boðið er skoðað þá sést að lægsta hækk­unin í því var 55 þús­und og það hæsta tæp 80 þús­und. Það er auð­vitað óra­vegu frá þeim kjara­samn­ingi sem und­ir­rit­aður var við SGS, VR og sam­flot iðn­að­ar­manna. Að því leyt­inu til liggur trún­aður Samtaka atvinnu­lífs­ins hjá þeim sam­tökum sem þegar hefur verið gengið frá kjara­samn­ingum við og ef við hefðum gengið að þessu til­boði Eflingar hefðum við þurft að taka upp alla kjara­samn­inga sem búið er að sam­þykkja í land­inu hingað til. Að því leyt­inu til var þetta algjör­lega óað­gengi­legt af hálfu SA. Við­semj­endur okkar verða, og hafa í gegnum ára­tug­ina, getað treyst því að þegar við höfum und­ir­ritað kjara­samn­inga við ein­hverja þá snúum við okkur því næst ekki við og semjum um eitt­hvað allt annað við næsta aðila,“ segir Halldór Benjamín í sam­tali við Stundina.

„Ég tel að þetta sé óþarfi og óskyn­sam­leg nálgun af hálfu Sól­veigar Önnu og Eflingar“
Halldór Benjamín Þor­bergs­son
fram­kvæmda­stjóri SA

Halldór segir að hann hafi bundið vonir við það að hægt yrði að semja við Eflingu, enda hefðu SA sýnt sveigj­an­leika og komið til móts við kröfur stétt­ar­fé­lags­ins, þó þannig að slíkt rúm­að­ist innan þess ramma sem mót­aður hefði verið með kjara­samn­ingnum sem SA hefðu þegar und­ir­ritað við Starfs­greina­sam­bandið. Það hafi hins vegar ekki orðið. „Ég verð að lýsa yfir von­brigðum mínum og Samtaka atvinnu­lífs­ins með þessa þróun. Ég tel að þetta sé óþarfi og óskyn­sam­leg nálgun af hálfu Sól­veigar Önnu og Eflingar. Sér í lagi í ljósi þess að við höfum samið við öll aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands­ins hring­inn í kringum landið, sam­flot versl­un­ar­manna og sam­flot iðn­að­ar­manna hring­inn í kringum landið. Saman mynda þau samn­inga­blokk um 80 þús­und launa­manna, sem ekki hafa bara und­ir­ritað kjara­samn­inga heldur kosið um þá og sam­þykkt í 80 til 90 pró­sent til­vika. Það segir mér að það sé víð­tæk sátt um þessa kjara­samn­inga.“

Samtök atvinnu­lífs­ins gerðu samn­inga­nefnd Eflingar grein fyrir því að til­boð stétt­ar­fé­lags­ins væri SA alveg óað­gengi­leg. Var þá ekki lengra kom­ist og sleit Efling við­ræð­unum. Spurður hvort hann sjái ein­hverja útleið úr stöð­unni eins og hún er nú svarar Halldór Benjamín að hann telji að sú leið sé lýð­ræð­is­leg þátt­taka hinna almennu félags­manna Eflingar. „Mín skoðun, og mín trú, er sú að af hinum ríf­lega 20 þús­und félags­mönnum Eflingar sem starfa á almennum vinnu­mark­aði sé engin sátt um að afsala sér aft­ur­virkni kjara­samn­inga til 1. nóv­em­ber. Ég hef talað fyrir því að lýð­ræðið sé öfl­ug­asta afl sem við eigum og hef hvatt Eflingu til þess að láta fara fram alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu um þann kjara­samn­ing sem Starfs­greina­sam­bandið hefur und­ir­ritað. Ég er sann­færður um að yfir­gnæf­andi meiri­hluti félags­manna Eflingar myndi sam­þykkja þann kjara­samn­ing og tryggja sér þar með aft­ur­virkni til 1. nóv­em­ber 2022.“

Þegar blaða­maður sagði að for­svars­menn Samtaka atvinnu­lífs­ins og Eflingar hlytu að von­ast til að hægt yrði að ná saman að nýju við­ræðu­grund­völl, því vænt­an­lega hefði eng­inn áhuga á að verk­falls­að­gerðum svar­aði Halldór Benjamín: „Ég er ekki sann­færður um að Sólveigu Önnu langi ekki í verk­falls­að­gerðir.“

Kjósa
-2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Thoroddsen skrifaði
    Ég er ekkert sérlega trúaður á það að þessi taktík hjá honum að nefna nafn Sólveigar sí og æ, virki nokkuð. Mér finnst þetta vera veikleikamerki hjá honum, eins og að hann sé kominn upp við vegg í þessu máli.
    3
  • Elías Sigurðsson skrifaði
    Ég held að Halldór Benjamín ætti að hætta því að gera fólki upp skoðanir. Verkfallsvopið er beitt vopn og er réttur Eflingar ótvíræður til að beita því til að þrýsta á hækkun lægstu launa. Samtök atvinnurekenda hafa ekkert um það að segja. Væntanlega munu Samtök atvinnurekenda komast að því að Halldór Benjamín gerði mistök og valdi að fara dýrari og torsóttari leiðina. Honum væri hollara að gaumgæfa kosti SA í stöðunni en að vera að hóta Eflingu. Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn. Halldór Benjamín getur enn forðað atvinnurekendum frá tjóni því sem hlýst af víðtækum verkföllum. Því það verður dýrasta leiðin fyrir SA.
    4
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Það er a m k einn maður á Íslandi, sem vill heldur verkfall enn að greiða sæmandi laun.
    4
  • SE
    Sigurvin Einarsson skrifaði
    Það er merkilegt ef hægt er að svifta stéttarfélag samningsrétti á þeirri forsendu að búið sé að semja við aðra. Samkvæmt því er nóg að hafa eina samninganefnd fyrir öll stéttarfélög landsins.
    "...hefðum við þurft að taka upp alla kjarasamninga sem búið er að samþykkja í landinu hingað til". Þetta er rangt, gerðir samningar hafa bara sinn gildistíma.
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Miðað við framkomu við Sólveigu Önnu hjá framkvæmdastjóra SA og ríkissáttasemjara held ég að þetta verði langt verkfall ?

    Efling er með Stefán Ólafsson með sér í tilboðsgerð og útreikningum.

    Eftir viðtöl við framkvæmdastjóra SA þá efast ég um að hann hafi lesið tilboð Eflingar ?
    8
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Halldór Benjamín hefur aldrei haft í hyggju að semja við Eflingu! Hann vill svelta þá til hlýðni og til að undirrita samninga sem aðrir hafa gert, en helst af öllu vill hann og ætlar að vinna að því að ýta lýðræðislegum kjörnum fulltrúa Eflingu út úr félaginu. Þetta er pólitískur hráskinnaleikur Hallódr Benjamíns en íslenska hjarðhegðunin og rassasleikjugangur við ríka fólkið stýrir hegðun almenningsálitsins.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár