Stærsta skepna sögunnar? Sagan af klippernum sem fórst og sæskrímslinu

Upp á síðkastið hafa vís­inda­menn verið að end­ur­skoða fyrri hug­myndir um lengd og þyngd hvaleðl­anna ógur­legu. Voru kannski ein­hverjar þeirra stærstu skepnur Jarðar fyrr og síðar? Hugs­an­lega – en hugs­an­lega munum við aldrei kom­ast að því!

Stærsta skepna sögunnar? Sagan af klippernum sem fórst og sæskrímslinu
Hér má sjá mann í réttum hlut­föllum við shasta­saurus sikanni­ensis, steypireyði og svo hinn hugs­an­lega risa Hectors. Enginn veit að vísu hvernig það dýr gæti hafa litið út svo hér er sýndur náfrændi shasta­saurusar, shon­isaurus popularis, sem mun í raun­inni hafa orðið um 15 metra langur.

Þann 13. maí 1869 lagði stórt og glæsi­legt þríma­stra segl­skip upp frá ytri höfn­inni við bæinn Lytt­leton á Suð­ur­eyju Nýja-Sjálands. Þetta var fimmtán vetra gam­alt skip, hét Matoaka, 60 metra langt og tæp 1.500 tonn að þyngd, einkar glæsi­legur klipper svo­kall­aður er rann skeiðið milli Eyjaálfu og Evrópu hraðar en flest skip önnur um þær mundir.

Ferðinni var heitið til London, sigl­inga­leiðin er um 23.000 kíló­metrar og búist var við að skipið næði til Evrópu um miðjan ágúst eftir þriggja mán­aða sigl­ingu. Þetta var átt­unda sigl­ing Matoaka þessa sömu leið og sú skemmsta hafði tekið 82 daga. Siglt skyldi um Magellan-sund við Horn­höfða, syðsta odda Suður-Ameríku, og því næst norður allt Atl­ants­hafið. Í áhöfn­inni voru 33 og far­þegar voru 45 svo alls voru 78 manns um borð þegar skipið tók vind í seglin utan við höfn­ina í Lytt­leton og stefndi síðan í aust­urátt.

Þar af voru 18 börn.

…
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár