Ég fór að hugsa um sjálfa mig og sinna sjálfri mér betur

Elísabet Jök­uls­dóttir rit­höf­undur hefur upp­lifað ham­ingju og óham­ingju. Gleði og sorgir. Hún upp­lifði meðal ann­ars mikla óham­ingju þegar hún var lögð í ein­elti í grunn­skóla, þegar hún var í ofbeld­is­sam­bandi og þegar hún flutti úr hús­inu sínu í Vest­ur­bænum þar sem svo margt hafði gerst. Elísabet fann aftur ham­ingju­til­finn­ing­una með sínum leiðum.

Ég fór að hugsa um sjálfa mig og sinna sjálfri mér betur
Þurfti að finna ham­ingj­una eftir ein­elti Elísabet Jök­uls­dóttir riit­höf­undur segir að hún hafi þurft að finna ham­ingj­una eftir að hún lenti í ein­elti sem barn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það hafa skipst á skin og skúrir í lífi Elísa­betar Jök­uls­dóttur rit­höf­undar.  Þegar hún er spurð hvenær og hvers vegna á lífs­leið­inni hún hafi þurft á því að halda að finna ham­ingj­una aftur þá nefnir hún nokkur dæmi. Fyrst nefnir hún óham­ingj­una sem hún upp­lifði þegar hún var lögð í ein­elti í skóla í tvo vetur þegar hún var 11–12 ára.

„Það var hræði­legt. Pabbi og mamma voru nýskilin og ég fór í nýjan skóla og náði engu sam­bandi við krakk­ana. Það var stelpuklíka í bekknum sem réði öllu og sem not­aði þá taktík að láta eins og maður væri ekki til, að horfa ekki á mann eða horfa á mann með fyr­ir­litn­ing­ar­augna­ráði. Ég fékk ekki að vera með í partíum og maður var úti­lok­aður úr öllu félags­lífi. Þetta var and­legt ofbeldi og þetta fór rosa­lega illa með sjálfs­mynd­ina. Mér fannst ég vera alger skítur og ég var alltaf að …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár