Maðurinn sem teiknaði hús í kastalastíl í miðbænum

Einar Erlends­son arki­tekt er tals­vert minna þekkt nafn en fyr­ir­renn­ari hans í starfi húsa­meist­ara rík­is­ins, Guðjón Sam­ú­els­son. Einar teikn­aði ótrú­legan fjölda þekktra húsa í Reykja­vík, eins og Hjálp­ræð­is­her­inn, Frí­kirkju­veg 11 og Galta­fell. Eitt af ein­kennum hans í mörgum bygg­ingum var kast­ala­stíll­inn sem gefur hús­unum hans ævin­týra­legan blæ.

Maðurinn sem teiknaði hús í kastalastíl í miðbænum
Galta­fell við Lauf­ás­veg Einar Erlends­son teikn­aði húsið Galta­fell í kasta­stíl fyrir útgerð­ar­mann frá Bíldudal, Pétur Thor­steins­son, sem meðal ann­ars er þekktur sem faðir lista­manns­ins Muggs. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einar Erlends­son, arkti­tekt og húsa­meist­ari rík­is­ins, teikn­aði mörg þekkt hús í miðbæ Reykja­víkur, Þing­holt­unum og gamla vest­ur­bænum. Meðal ann­ars Gamla bíó í Ing­ólfs­stræti, Galta­fell við Lauf­ás­veg, hús Hjálp­ræð­is­hers­ins sem oft er kallað Herkastal­inn, Lista­safn Einars Jóns­sonar, húsið á horni Banka­strætis og Ing­ólfs­strætis sem er kallað Hús mál­ar­ans og Frí­kirkju­veg 11, sem Thor Jensen lét reisa fyrir sig. 

Mörg af hús­unum sem Einar teikn­aði eru kennd við „íslenska stein­steypuklassík“ en á öðrum ára­tug síð­ustu aldar var í auknum mæli byrjað að nota steypu í hús­bygg­ingar á Íslandi. Steypan leysti þá timbrið, og auð­vitað torf­húsin, af og þótti miklu fínna að byggja úr stein­steypu en viði. 

Bók um mann sem setur svip á bæinnBjörn Georg Björns­son hefur gefið út bók um arki­tekt­inn Einar Erlends­son sem heldur betur hefur sett svip á Reykja­vík með hús­unum sínum en hann er þrátt fyrir það til­tölu­lega lítt þekktur.
…
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Húsið á Arngerðareyri er falleg sjón á eyðilegum stað.
    Einhver hlýtur að vita hver teiknaði það. Hélt alltaf að
    Sigurður á Laugabóli, sá einstaki maður hefði látið byggja það
    því að Kaupfélagið var í allt öðru húsi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár