867. spurningaþraut: Rignir hundum og köttum?

867. spurningaþraut: Rignir hundum og köttum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða kettir eru þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða erlenda fjöl­miðli birt­ist á dög­unum við­tal við Björku Guð­munds­dóttur þar sem hún fór hörðum orðum um frammi­stöðu Katrínar Jak­obs­dóttur í umhverf­is­málum?

2.  Árið 1901 tók Ját­varður 7. við kon­ungs­tign á Bret­landi af ... hverjum?

3.  Árið 1931 opn­aði fyrsti sér­hann­aði leik­skóli lands­ins. Leik­skól­inn var í Reykja­vík og er enn á sínum stað á Skóla­vörðu­holt­inu. Hvað heitir þessi fyrsti leik­skóli?

4.  Í hvaða ríki falla stór­fljótin Tígris og Efrat til sjávar?

5.  Hvaða spen­dýr eru með hlut­falls­lega lengstu fram­limi, sem sagt miðað við stærð dýrs­ins?

6.  Í ríki einu er ónefnd höf­uð­borg lang­fjöl­menn­asta borg en í næstu fjórum sætum koma borg­irnar Debrecen, Szeged og Miskolc og loks Pécs. Hvaða land er þetta?

7.  Hvaða algenga hús­dýr okkar mann­anna skortir algjör­lega bragð­lauka sem sýna við­brögð við sykri eða sætu­efnum yfir­leitt — og dýrin hafa því minni en engan áhuga á sætri fæðu?

8.  Hver er þekkt­astur þeirra sem líf­látnir hafa verið á Golgata-hæð?

9.  Dósóþesus er afar sjald­gæft nafn á Íslandi en þó kann Íslend­inga­bók dæmi um 11 karla sem hafa verið skírðir þessu nafni á ára­bil­inu 1761 til 1910. Allir eða nær allir virð­ast vera frá einum afmörk­uðum lands­hluta. Hvaða lands­hluti er það?

10.  Hverjum er hér lýst? „[Hann] var mik­il­leitur, enni­breiður, brúna­mik­ill, nefið ekki langt, en ákaf­lega dig­urt, gran­stæðið vítt og langt, hakan breið furðu­lega og svo allt um kjálk­ana, háls­digur og herði­mik­ill, svo að það bar frá því, sem aðrir menn voru, harð­leitur og grimm­legur, þá er hann var reiður; hann var vel í vexti og hverjum manni hærri, úlf­grátt hárið og þykkt og varð snemma sköll­óttur; en er hann sat, sem fyrr var ritað, þá hleypti hann annarri brún­inni ofan á kinn­ina, en annarri upp í hár­rætur; [Hann] var svarteygur og skol­brúnn.“

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist hvutt­inn á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Guardian.

2.  Viktoríu.

3.  Græna­borg.

4.  Írak.

5.  Leð­ur­blökur.

6.  Ung­verja­land.

7.  Kettir.

8.  Jesúa frá Nasaret.

9.  Vest­firðir.

10.  Agli Skalla­gríms­syni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd eru síam­sk­ettir.

Á neðri mynd er Chihuahua-hundur.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár