868. spurningaþraut: Hér er Noomi Rapace í brennidepli!

868. spurningaþraut: Hér er Noomi Rapace í brennidepli!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða him­in­hnöttur prýðir mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Aki Kauris­mäki er lista­maður sem fæst við ... hvað?

2.  En hvaðan ætli hann sé ætt­aður?

3.  Sænska kvik­mynda­stjarnan Noomi Rapace lék nýlega aðal­hlut­verk í kvik­mynd leik­stjór­ans Vla­di­mars Jóhanns­sonar sem tekin var hér á landi. Hvað heitir sú mynd?

4.  Rapace varð fræg fyrir rúmum ára­tug þegar hún lét nokkurn dimm­huga tölvunörd í þremur sænskum spennu­myndum eftir sögum Stieg Larssons. Sú per­sóna nefn­ist Lisbeth ... hvað?

5.  Rapace er fædd í Hudiksvall í Svíþjóð en flutt­ist fimm ára í annað land með móður sinni og ólst þar upp. Hvaða land var það?

6.  „Fagurt gal­aði fugl­inn sá ...“ segir í fornum kvið­lingi. Hvaða fugl gal­aði svo fag­urt?

7.  Yfir hvaða ríki réði Katrín mikla?

8.  En í hvaða ríki er Ula­an­baatar höf­uð­borg?

9.  Hvað heitir skáld­saga Halldórs Laxness um Ólaf Kárason?

10.  Vírusinn sem veldur Covid-19 er nefndur XXXX-CoV-2. Það er að segja í stað fjög­urra bók­stafa hef ég sett XXXX. Hvað á að standa þarna?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kvik­mynda­gerð.

2.  Frá Finn­landi.

3.  Hún er ýmist nefnd Lamb eða Dýrið, svo stig fæst fyrir hvorttveggja.

4.  Salander.

5.  Á Íslandi.

6.  Hænsni.

7.  Rúss­landi.

8.  Mongólíu.

9.  Heims­ljós.

10.  SARS.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Tunglið okkar. Þetta er sú hlið þess sem ævin­lega snýr frá Jörðinni.

Á neðri mynd er söng­konan Bríet. Myndin er af vef Morg­un­blaðs­ins.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár