869. spurningaþraut: Hvenær voru uppi síðustu formæður bæði katta og hunda?

869. spurningaþraut: Hvenær voru uppi síðustu formæður bæði katta og hunda?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi per­sóna birt­ist í frægri teikni­mynd frá 1950. Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  George Lucas heitir banda­rískur kvik­mynda­gerð­ar­maður sem er frægastur fyrir mik­inn bíó­mynda­flokk sem hann hleypti af stokk­unum fyrir rúmum 40 árum. Hvað heitir sá flokkur?

2.  Hver er eina uglu­teg­undin sem verpir að stað­aldri á Íslandi?

3.  Önnur uglu­teg­und er hins vegar tíður gestur hér og verpir öðru hvoru, að minnsta kosti. Hvaða ugla er það?

4.  Í hvaða landi er borgin Wuppertal?

5.  Úrsula Iguarán Buendía heitir sann­kölluð ætt­móðir sem lætur að sér kveða í frægri skáld­sögu. Hvað heitir skáldsagan?

6.  Og hvað heitir höf­undur hennar?

7.  Milli hvaða tveggja landa eru Álandseyjar?

8.  Úr hverju er íslenskt brenni­vín bruggað?

9.  Út af hvaða lands­hluta Íslands eru Halamið?

10.  Einu sinni var uppi lítið rán­dýr sem við köllum miacis. Það var á stærð mink og var hag­vant bæði á jörðu niðri og í trjám. Miacis er, eftir því sem við vitum best, síð­asti sam­eig­in­legi for­faðir bæði hunda og katta. En hversu langt (mjög gróf­lega áætlað) er síðan miacis var á dögum? Eru það 50 þús­und ár — 500 þús­und ár — 5 millj­ónir ára — 50 millj­ónir ára — 500 millj­ónir ára — eða 5 millj­arðar ára?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða landi er sú glæsi­lega og mörg þús­und ára gamla forn­minj sem sjá má á mynd­inni hér að neðan? Stærðina má meta með því að skima eftir tveim mann­eskjum sem sjá fyrir neðan ferlíkið vinstra megin.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Star Wars

2.  Brandugla.

3.  Snæugla.

4.  Þýska­landi.

5.  Hundrað ára ein­semd.

6.  García Márquez.

7.  Finn­lands og Sví­þjóðar.

8.  Kart­öflum.

9.  Vest­fjörðum.

10.  50 millj­ónir ára.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ösku­buska.

Á neðri mynd­inni má sjá svo­nefndan ziggurat (stallap­íramída) í borg­inni Úr í Írak.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að íslenskt brennivín væri iðnaðarspíri þynntur með vatni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár