Fyrri aukaspurning:
Hvað heitir konan hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Hvaða ár er miðað við að íslam hafi upphafist. Var það árið 410 — 510 — 610 — eða 710?
2. Hvar varð eldgos á Íslandi árið 1918?
3. Hvaða dýr var sagt koma með börnin samkvæmt miðaldaþjóðsögum í Evrópu?
4. Hvað var eina kommúnistaríkið í Evrópu þar sem hrinda þurfti stjórninni frá völdum með valdi?
5. Hvaða Íslendingur var nýlega valinn einn af þremur stjórnendum rannsóknar sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir á sprengjuárás sem gerð var á fangelsi í Úkraínu?
6. Hver var forseti Rússlands á undan Pútin?
7. Hvaða tungumál er útbreiddast í Sviss?
8. Pilat er hún kölluð, stærsta sandalda í Evrópuríki. Hún er rúmlega 100 metra há, 2,7 kílómetra löng frá norðri til suðurs og um 500 metra breið. Milljónir ferðamanna koma að skoða sandölduna á hverju ári. En í hvaða landi er Pilat?
9. Hvaða fyrirbæri er kallað elrir?
10. Við hvað fékkst rússneska konan Anna Akhmatova? Hér þarf nákvæmt svar.
***
Seinni aukaspurning:
Þessi karl var á sínum tíma íþróttamaður í fremstu röð. Hvað heitir hann?

***
Svör við aukaspurningum:
1. 610.
2. Í Kötlu.
3. Storkurinn.
4. Rúmenía.
5. Ingibjörg Sólrún.
6. Jeltsín.
7. Þýska.
8. Frakklandi.
9. Trjátegund.
10. Hún var ljóðskáld. Rithöfundur dugar ekki.
***
Svör við aukaspurningum:
Á efri myndinni er María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður RÚV. Að venju duga tvö skírnarnöfn ef fólk notar þau bæði, svo María Sigrún dugar vel fyrir stigi.
Á neðri myndinni er danski fótboltamarkvörðurinn Peter Schmeichel.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Markvörðurinn Peter Schmeichel er einn af þessum skemmtilegu og einstökum markmanni, sem þegar er kominn í sögubækurnar.