865. spurningaþraut: Hvernig dýr nefnist serval?

865. spurningaþraut: Hvernig dýr nefnist serval?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kerecis heitir fyr­ir­tæki eitt sem hefur bæki­stöðvar á Ísafirði en hefur vakið athygli langt út fyrir land­stein­ana. Fyr­ir­tækið ein­beitir sér að þróun og fram­leiðslu á sára­plástrum úr ... hverju?

2.  Athygli vakti snemma í sumar er erlent fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki keypti hlut í Kerecis fyrir meira en fimm millj­arða króna, en á bak við það stendur aftur á móti víð­frægt danskt fyr­ir­tæki. Það fram­leiðir vörur er allir þekkja. Hvaða vörur?

3.  Í gær var spurt hér um hina ungu söng­konu Guðlaugu Sóleyju Hösk­ulds­dóttur. Önnur ung íslensk söng­kona heitir Sara Pét­urs­dóttir og hún hefur líkt og Guðlaug (og fleiri) komið fram undir sér­stöku lista­manns­nafni. Sara hefur nú til­kynnt að hún ætli að leggja tón­list­ar­mann­inn í sér til hliðar, en hvað hefur hún kallað sig?

4.  Hvaða þýska fót­boltalið hefur nú unnið meist­ara­titil karla í tíu ár í röð?

5.  Hvers konar dýr heitir á erlendum málum ser­val, en er á íslensku kennt við gresjur þær í Afríku þar sem dýrið býr?

6.  Hvað kall­að­ist bróðir Ladda sem lengi vel kom fram með honum?

7.  Hvað heitir Laddi ann­ars fullu nafni?

8.  Þorp eitt í Galíleu í Ísrael heitir á arab­ísku al-Majdal en á hebr­esku Migdal. Nafnið þýðir Turninn. Hvað heitir þekkasti ein­stak­ling­ur­inn sem mun vera frá þessu þorpi?

9.  Bygging á hverju hófst 13. ágúst 1961?

10.  Árni Bergmann var í þrjá ára­tugi helsti menn­ing­ar­skríbent og síðan rit­stjóri hvaða dag­blaðs?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fáni hvaða ríkis er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Fiskroði.

2.  Legó.

3.  Glowie.

4.  Bayern München.

5.  Köttur — nefn­ist gresjuköttur á íslensku.

Ser­valsk­ett­língar

6.  Halli.

7.  Þór­hallur Sig­urðs­son.

8.  María Magda­lena.

9.  Berlín­ar­múr­num.

10.  Þjóð­vilj­anum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Svala Björg­vins!

Á neðri mynd er fáni Mexíkó.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár