864. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Grímsey og Grímsey

864. spurningaþraut: Hér er spurt um bæði Grímsey og Grímsey

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Axlar-Björn er sögu­frægur maður í Íslands­sög­unni. Hvað vann hann sér til frægðar?

2.   Hvar á land­inu er Öxl sú sem Björn var kenndur við?

3.  Guð­laug Sóley Hösk­ulds­dótt­ir heitir korn­ung íslensk söng­kona sem hefur vakið athygli síð­ustu miss­eri fyrir tón­list sína. Hvað kallar Guðlaug sig?

4.  Hvaða ár var Alþing­is­húsið vígt? Var það 1781 — 1831 — 1881 — eða 1931?

5.  Grímsey heitir eyja ein sem er nokkurn veg­inn beint í norður af annarri all­stórri eyju. Hvað heitir sú síð­ar­nefnda?

6.  Hversu langt í norður frá meg­in­landi Íslands er Grímsey þessi? Er hún 10 kíló­metra frá landi — 40 kíló­metra — 80 kíló­metra — eða 110 kíló­metra?

7.  Önnur Grímsey er í mynni fjarðar tölu­vert vestar á land­inu. Hver er sá fjörður?

8.  Við hvað fékkst Henný Eldey Vil­hjálms­dóttir helst í líf­inu, svo eftir var tekið?

9.  Í hvaða jökli er Hvanna­dals­hnjúkur? 

10.  Hver lék aðal­karl­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Gauks­hreiðrið eða One Flew Over the Cuckoo's Nest?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessari hnupl­aði ég af vef­síðu Morg­un­blaðs­ins. Ólafur K. Magn­ús­son tók hana 1978 þegar tveir nýir þing­menn komu til vinnu sinnar í fyrsta sinn. Hvað heita þau — og hér verður að hafa bæði nöfn rétt.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Hann var morð­ingi.

2.  Á Snæ­fells­nesi.

3.  Gugusar. Hér er hlekkur á tón­list hennar.

4.  1881.

5.  Flatey á Skjálf­anda.

6.  40 kíló­metra.

7.  Stein­gríms­fjörður.

8.  Hún var söng­kona. Hér má heyra í henni.

9.  Öræfajökli.

10.  Jack Nicholson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er úr Gullæði Chaplins.

Á neðri mynd­inni má hins vegar sjá þau Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Vilmund Gylfason.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár