Framundan eru hamingjudagar

Stund­ar­skrá­in næstu vik­urn­ar.

Hamingjudagar

Hvar? Svarti kass­inn í Menn­ing­ar­hús­inu Hofi, Akureyri

Hvenær? Frumsýnt 2. sept­em­ber. Svo sýnt 3., 9. og 10. sept­em­ber áður en sýn­ingin fer suður yfir heiðar.

Miðaverð? For­sölu­verð 4.720 kr.

Ham­ingju­dagar, Happy Days, er eftir Samuel Beckett sem hlaut Bók­mennta­verð­laun Nóbels árið 1969. „Ó, þetta er ham­ingju­dagur, þetta verður enn einn ham­ingju­dagur!“ segir Vinní, fræg­asta kven­per­sóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að finn­ast lífið ham­ingju­ríkt og fal­legt þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart. Ham­ingju­dagar er um tak­marka­lausan lífs­vilja mann­eskj­unnar og ódauð­leika bjart­sýn­innar og er áreið­an­lega lang­skemmti­leg­asta leik­rit nóbels­höf­und­ar­ins sem lætur gamm­inn geisa með hríf­andi húmor, visku og ólík­indi.

Leikarar eru Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir og Árni Pétur Guð­jóns­son.

Leik­stjóri er Harpa Arn­ar­dóttir.

Verkið er aðeins sýnt á Akureyri tvær sýn­ing­ar­helgar áður en það fer suður í Borg­ar­leik­húsið.


Systur á ferð um landið 

Hvar? Upp­lýs­ingar á tix.is

Hvenær? 17.–27. ágúst

Miðaverð? 3.900 kr.

Hljóm­sveitin Systur efnir til tón­leika­ferðar um Ísland dag­ana 17.–27. ágúst. Sigga, Beta og Elín hafa unnið að laga­smíðum í sumar og senda frá sér sína fyrstu smá­skífu, Dusty Road, á næst­unni. Á tón­leik­unum gefst gestum kostur á að heyra frum­samið efni sem kemur út á plötu Systra sem vænt­an­leg er á næsta ári. Systur komu, sáu og sigr­uðu í Söngvakeppni sjón­varps­ins fyrr á þessu ári og voru full­trúar Íslands í Eurovision eftir að Lay Low bað þær um að flytja lagið sitt, Með hækk­andi sól. Í fram­hald­inu átt­uðu þær sig á því hvað tón­list­ar­stefnan átti vel við þær og stefna nú að því að gefa út þjóð­laga­skotna kán­trí­plötu.

 „Það er ynd­is­legt að fá að spila fyrir lands­byggð­ina. Við hlökkum til að keyra og vera í fal­legu umhverfi og nátt­úru sem við sækjum mik­inn inn­blástur úr þegar við semjum og spilum,“ segir Sigga.


Sjáumst - Tónleikaröð Más Gunnarssonar síðsumars 2022

Hvar? Garðabær, Keflavík og Selfoss

Hvenær? 25. ágúst til 2. sept­em­ber

Miðaverð? 5.900 kr.

Már Gunn­ars­son, tón­list­ar­maður og sund­kappi, hefur ákveðið að leggja sund­fer­il­inn á hill­una og ein­beita sér nú að tón­list­inni. Í haust mun hann hefja krefj­andi nám í tón­list­ar­há­skóla í Bret­landi og fer þangað einn síns liðs ásamt leið­sögu­hund­inum Max. Hann fer á næst­unni í stutta tón­leika­ferð um landið þar sem hann kveður landa sína í bili. „Ég finn að að ég stend á tíma­mótum; ég hef náð frá­bærum árangri í laug­inni. Heimsmet og þátt­taka á Ólymp­íu­leikum voru mark­mið sem ég hafði sett mér. En mér finnst það sem laugin býður upp á núna vera meira af því sama. Ég hef keppt á stærstu mótum heims, ég hef staðið á verð­launa­palli og nú er lag að hlusta á hjartað og styrkja mig í tón­list­inni. Þess vegna tek ég þessa ákvörðun,“ segir Már.


Hádegisleiðsögn: Andlit úr skýjum - mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals

Hvar? Kjar­vals­staðir

Hvenær? Alla mið­viku­daga  kl. 12.15 til sýn­ing­ar­loka sem eru 18. sept­em­ber nk.

Miðaverð? Aðgöngu­miði á safnið gildir

Viku­legar hádeg­is­leið­sagnir eru á mið­viku­dögum um sýn­ing­una á Kjar­vals­stöðum, Andlit úr skýjum - manna­myndir Jóhann­esar S. Kjarvals. And­lits­myndir Kjarvals hafa skipað veg­legan sess á yfir­lits­sýn­ingum á verkum lista­manns­ins og sam­sýn­ingum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sér­stak­lega. Hér eru olíu­mál­verk af þekktu fólki frá öllum tíma­bilum, vatns­lita­myndir af ítölsku fólki frá 1920, úrval blek- og túsk­teikn­inga frá 1928-30, rauð­krít­armyndir af fjöl­skyldu og nánum vinum og lítt þekktar and­lits­myndir frá seinni árum hans en einnig allar fáan­legar sjálfs­myndir Kjarvals.

Á sýn­ing­unni eru verk víða að, jafnt úr Kjar­vals­saf­n­eign Lista­safns Reykja­víkur, frá Lista­safni Íslands og frá einka­söfn­urum sem góð­fús­lega hafa lánað verk sem mörg hver hafa aldrei komið fyrir almenn­ings­sjónir.


Næstum þögn - Sigga Ella. Ljósmyndir og hljóðheimur eftir Siggu Ellu

Hvar? Gallerí Klaustur, Skriðuklaustri.

Hvenær? Til 8. sept­em­ber.

„Hér vinn ég, ólíkt því sem ég hef áður gert, með upp­lifun mína, sjón­ræna dag­bók sem er um leið til­bún­ingur á ein­hvers konar draum­heimi,“ segir Sigga Ella.

Sjónræn dag­bók 3. febr­úar 2022.

Það birtir aftur – næstum áþreif­an­leg orka í loft­inu, kraftur og feg­urð. Vonin og ofbirtan eftir allt myrkrið, mann­gæskan og jarð­gæskan, lit­irnir og glitrið. Sveifl­urnar í veðr­inu og um leið sköp­un­inni. Vetr­ar­hljóðin orðin hluti af mér, marrið í snjónum og næstum þögnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár