Lamandi myrkur og máttur vonarinnar

Kvik­myndin Ber­dreymi segir af vina­hópi ung­lings­drengja sem eru þekktir fyrir að vera harðir af sér og víla ekki fyrir sér að beita ofbeldi, en sýna líka mikla mýkt, blíðu og sam­heldni.

Lamandi myrkur og máttur vonarinnar

Guð­mundur Arnar Guð­munds­son frum­sýndi aðra kvik­mynd sína í fullri lengd, Ber­dreymi, undir lok apríl. Fyrr á árinu höfðu borist þær fréttir að myndin hefði verið valin besta evr­ópska myndin í Panorama-flokki Berl­inale kvik­mynda­há­tíð­ar­innar og yrði sýnd í 44 löndum. Hjarta­steinn, fyrri kvik­mynd Guð­mundar Arnar, var einnig marg­verð­launuð og fékk minnst 45 alþjóð­leg verð­laun auk níu Eddu­verð­launa. Það er því óhætt að segja að leik­stjór­inn hafi stimplað sig ræki­lega inn, enda er Ber­dreymi vin­sælasta kvik­myndin í íslenskum kvik­mynda­húsum um þessar mundir sam­kvæmt aðsókn­ar­tölum. 

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar á Berl­inale-kvik­mynda­há­tíð­inni er tekið fram að Ber­dreymi sé ekki dæmi­gerð íslensk kvik­mynd, í henni birt­ist ekki stór­brotin nátt­úra heldur hrátt borg­ar­lands­lag. Þrátt fyrir hörk­una sé það hlýjan sem geri mynd­ina ein­staka. Sjálfur hefur leik­stjór­inn sagt að sagan byggi á menn­ingu sem við­gekkst í kringum 2000 þegar hann var að alast upp í Árbænum, þar sem mikið var um slags­mál á milli hverfa og hann …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • It is a piece of genius that all of Iceland should be very proud of (and should go and watch at the cinema).
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár