732. spurningaþraut: Hver skrifaði Ulysses?

732. spurningaþraut: Hver skrifaði Ulysses?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn hér að ofan? Hann er þarna orð­inn ögn eldri en þegar Íslend­ingar höfðu mest af honum að segja.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sérlegur aðstoð­ar­maður hvers var Martin Bormann?

2.  Hvers son er söngv­ar­inn vin­sæli Páll Óskar?

3.  Systir hans er víðkunn söng­kona, kunn undir gælu­nafni sínu, sem er ...?

4.  Fjórir af Aust­fjörðum heita — í staf­rófs­röð — Fáskrúðs­fjörður, Norð­fjörður, Seyð­is­fjörður, Beru­fjörður. Raðið þeim í rétta röð frá norðri til suð­urs. Allt verður að vera rétt til að stig fáist!

5.  Hver lék kaftein­inn Jack Sparrow í nokkrum fjör­ugum bíó­myndum 2003-2017?

6.  Pantheon þýðir í raun „hof allra guða“ og slík hof eru til á ýmsum stöðum. En í hvaða borg er hið stærsta og fræg­asta Pantheon?

7.  En hvar er hið fræg­asta Parthenon hins vegar?

8.  Thomas Ber­es­ford og kona hans Prudence voru ævin­lega kölluð Tommy og Tuppence. Þau höfðu gaman af að glíma við ráð­gátur ýmsar og voru ansi snjöll að leysa þær. Hver skrif­aði um þau hjón?

9.  Hundrað ár eru um þessar mundir frá því skáldsagan Ulysses kom út en hún þótti mikið braut­ryðj­enda­verk í módern­isma í bók­menntum, og þróun skáld­sagna­gerðar yfir­leitt. Hver skrif­aði þessa bók?

10.  Andrei Zhdanov hét einn af helstu aðstoð­ar­mönnum Jósefs Stalíns ein­ræð­is­herra Sov­ét­ríkj­anna. Hann fædd­ist árið 1896 í hafn­ar­borg einni sem líka var mikil iðn­fram­leiðslu­borg og mið­stöð á sínu svæði. Þegar Zhdanov lést fyrir aldur fram 1948 var fæð­ing­ar­borg hans svipt sínu upp­haf­lega nafni og kölluð Zhdanov í 40 ár en þegar Sov­ét­ríkin voru að hruni komin 1989 fékk borgin aftur sitt gamla nafn. Hvaða borg var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver skóp verk það sem hér að neðan sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hitlers.

2.  Hjálmtýs­son.

3.  Diddú.

4.  Seyð­is­fjörður, Norð­fjörður, Fáskrúðs­fjörður, Beru­fjörður.

5.  Johnny Depp.

6.  Í Róm.

7.  Í Aþenu.

8.  Agatha Christie.

9.  Joyce.

10.  Mariupol.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd er Boris Spassky fyrrum heims­meist­ari í skák.

Boris Spassky að tafli

Á neðri mynd er Þvotta­konan eftir Ásmund Sveins­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár