733. spurningaþraut: Náttúrufyrirbrigði sem eru 85 ferkílómetrar?

733. spurningaþraut: Náttúrufyrirbrigði sem eru 85 ferkílómetrar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi kaup­sýslu­kona?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hún lét til skamms tíma mjög til sín taka í ákveðnu Evr­ópu­landi þar sem hún stund­aði marg­vís­leg fyr­ir­sætu­störf og fyr­ir­tækja­rekstur. Hvaða land var það?

2.  Mjólk­ur­fyr­ir­tækið Arna hefur vakið athygli á síð­ustu árum fyrir þrótt­mikla sam­keppni sem fyr­ir­tækið veitir ris­anum MS á mjólk­ur­mark­aði. Hvar á land­inu upp­hófst Arna?

3.  Hvaða höf­uð­borg í Evrópu er í raun tvær eldri borgir sam­vaxnar, eins og nafn höf­uð­borg­ar­innar gefur raunar til kynna?

4.  Hvað hét síð­asti leið­togi Sov­ét­ríkj­anna sál­ugu?

5.  En hvað hét sá leið­togi sem kom á undan honum?

6.  Árið 2014 varð eld­gos á Íslandi og rann þá hraun yfir 85 fer­kíló­metra lands og er það mesta hraun sem runnið hefur á Íslandi síðan 1783. Hvað kall­ast þetta hraun?

7.   Til sam­an­burðar, þá er til­tekið nátt­úru­fyr­ir­bæri á Íslandi, af allt öðru tagi, líka því sem næst 85 fer­kíló­metrar. Þetta fyr­ir­bæri er líka ann­ars staðar á land­inu, ekki all­fjarri Reykja­vík, og ég leyfi mér að full­yrða að allir hafi komið þangað. Hvað er þetta síð­ara 85 fer­kíló­metra nátt­úru­fyr­ir­bæri?

8.  En hraunið víð­áttu mikla sem rann 1783, úr hvaða eld­stöð kom það?

9.  Hver hélt niðri í sér and­anum í tveimur ára­mótaskaupum í röð?

10.  Í til­teknu frægu leik­riti ávarpar aðal­sögu­hetjan haus­kúpu með nafni, enda þekkti hetjan haus­kúp­una meðan enn var á henni hold. Hvað hét karl­inn sem átti þessa haus­kúpu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar má sjá kon­una hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Búlgaríu.

2.  Bol­ung­ar­vík.

3.  Búdapest.

4.  Gor­batjov.

5.  Térnenkó.

6.  Holu­hraun.

7.  Þing­valla­vatn.

8.  Laka­gígum.

9.  Villi Netó.

10.  Jórik, Yorick.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ásdís Rán.

Konan á neðri mynd­inni er úr Game of Thrones-sjón­varps­s­er­í­unni eða Game of Thrones.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bjarni Sigurðsson skrifaði
    Sé ekki betur en það sé villa í spurningu 5, Konstantin Chernenko var leiðtogi Sovétríkjanna í rúmt ár 1983 til 84.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár