731. spurningaþraut: Tveggja ára afmæli spurningaþrautar

731. spurningaþraut: Tveggja ára afmæli spurningaþrautar

Tvö ár eru nú síðan spurn­inga­þrautin hóf göngu sína hér í Stund­inni. Af því til­efni birti ég fyrstu þraut­ina aftur í gær. En hér kemur þraut dags­ins:

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða landa­fræði­fyr­ir­brigði má hér sjá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Píreus er hafn­ar­borg stór­borgar einnar í Evrópu. Hver er sú?

2.  Michael Jordan var kappi mik­ill fyrir 20-30 árum. Hvað fékkst hann við?

3.  Og í nafni hvaða fyr­ir­tækis/hóps/liðs/stofn­unar/apparats vann Jordan þessi sín mestu afrek?

4.  Hversu hár er Heima­klettur í Vest­manna­eyjum? Er hann 83 metrar á hæð — 183 metrar — 283 metrar — 383 metrar, eða 483 metrar?

5.  Hver er lengsta á í heimi?

6.  Alex­andra Kollontai hét kona. Hún var eina konan í hópi karl­manna sem tóku sér mikið verk fyrir hendur í byrjun 20. aldar, og tókst það verk­efni — því miður, má lík­ega segja með því að vera vitur á. En hvaða karllægi hópur var þetta sem Alex­andra Kollontai til­heyrði?

7.  Þegar stað­bundið skúra­veður og sól­skin fara saman og við erum sjálf (yfir­leitt) stödd á upp­styttu­svæði, hvað ger­ist þá?

8.  Hvað heitir sundið milli Sikil­eyjar og meg­in­lands Ítalíu?

9.  Sveskjur eru þurrk­aðar ... hvað?

10.  Hversu margir partar eru í einum með­al­bíl og þá eru skrúfur og rær með­taldar? Hér er gefið svig­rúm upp á 10.000 til eða frá.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aþenu.

2.  Körfu­bolta.

3.  Chicago Bulls var liðið hans.

4.  283 metrar ku vera rétt.

5.  Níl.

6.  Rúss­neskir komm­ún­istar — Lenín og Bol­sé­víkar hans og fyrstu ráða­menn Sov­ét­ríkj­anna.

7.  Þá sjáum við regn­boga (nær und­an­tekn­ing­ar­laust).

8.  Messina-sund.

9.  Plómur.

10.  Um 30.000 hlutar segir á virðu­legri vef­síðu. Allt frá 20.000-40.000 telst því vera rétt!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Svarta­hafið úr norð­austri. Hér er það frá „venju­legu“ sjón­ar­horni.

Á neðri mynd­inni er Frida Kahlo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Tryggvi Sigfusson skrifaði
    Stalin drap Lenin os stal byltingunni svo læiklega var konan á réttri leið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár