725. spurningaþraut: Hvernig er stúlkan mín?

725. spurningaþraut: Hvernig er stúlkan mín?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða karl má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Mál­fræð­ingur einn hefur verið áber­andi í umræðum um íslenska tungu á síð­ustu árum, nú síð­ast þegar hann lýsti því yfir að ástæðu­laust væri að leið­rétta fólk sem segir „mér langar“. Hvað heitir hann?

2.  Stúlka fædd 1996 var mjög efni­leg fót­bolta­kona í liði Aft­ur­eld­ingar í Mos­fellsbæ. Hún náði hins vegar aðeins að spila 7 meist­ara­flokks­leiki á árunum 2011-2014 áður en meiðsli bundu endi á feril hennar á því sviði. Um dag­inn gerð­ist hún hins vegar aðal­styrkt­ar­að­ili meist­ara­flokks kvenna hjá Aft­ur­eld­ingu og munu fót­bolta­kon­urnar leika með nafn hennar á treyjum sínum. Hver er þetta?

3.  Hvar er hæsta eld­fjall sem vitað er um, Olympus Mons?

4.  Hvað er beitu­kóngur?

5.  Á hverjum leng­ist nefið þegar hann lýgur?

6.  Hvernig er „stúlkunni minni“ lýst í kvæð­inu Ég bið að heilsa?

7.  Hver orti það kvæði?

8.  Í hvaða heims­álfu eru upp­runa­leg heim­kynni strúta?

9.  Við efri enda Skóla­vörðu­stígs í Reykja­vík er stytta af karl­manni einum. Hver er hann?

10.  E=mc2 — hver fann upp á þessu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá bæ einn á Íslandi — eins og hann leit út fyrir all­nokkrum ára­tugum. Hvaða bær er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eiríkur Rögn­valds­son.

2.  GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð.

3.  Á Mars.

4.  Kuðungur, skel­dýr.

5.  Gosa.

6.  Hún er „eng­ill með húfu og rauðan skúf, í peysu“.

7.  Jónas Hall­gríms­son.

8.  Afríku.

9.  Leifur Eiríks­son.

10.  Einstein.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Tȟatȟáŋka Íyotake, eða Sitting Bull eins og hann er nefndur á ensku.

Á neðri mynd­inni er Hvera­gerði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár