726. spurningaþraut: Hver krúnurakaði sig 2007?

726. spurningaþraut: Hver krúnurakaði sig 2007?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Vil­hjálmur prins á Bret­landi er her­togi af ...?

2.  Hversu mörg börn á hann með konu sinni?

3.  Frægt fólk tekur upp á ýmsu. Eitt frægð­ar­menni tók upp á því 2007 að krúnuraka sig eftir að tékkað sig út af með­ferð­ar­stofnun vegna áfengis- og vímu­efna­vanda en fór svo inn á stofn­un­ina fljót­lega aftur. Hver var þetta?

4.  Hver var glæpur sá sem Jósef K. var hand­tek­inn fyrir og dreg­inn fyrir rétt, eins og sagt er frá í frægri bók?

5.  Hver skrif­aði bók­ina?

6.  Hvaða leik­rit var frum­sýnt fyrir réttum 70 árum og hefur gengið síðan (fyrir utan hlé í eitt ár vegna Covid)?

7.  Hér er spurt um fyr­ir­bæri. Í arab­ískum löndum er fyr­ir­bærið tengt töl­unni sex, en í spænsku­mæl­andi löndum er það tengt töl­unni sjö — og sama mun reyndar upp á ten­ingnum á Ítalíu, í Þýska­landi og víðar. Hér á Íslandi er þó oft­ast talað um töl­una níu í sam­bandi við þetta fyr­ir­bæri, og er sú raunin um mest­allan heim. Í raun­inni vita samt allir að öll sú talna­speki er tóm vit­leysa og fyr­ir­bærið er aðeins eitt. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?

8.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Beirut?

9.  Hvaða lík­ams­galla á Óðinn æðsti guð nor­rænna manna við að stríða?

10.  Calvin Cordozar Broadus Jr. er rétt rúm­lega fimm­tugur tón­list­ar­maður sem fáir þekkja reyndar undir sínu réttu nafni. Hann er hins vegar víð­kunnur undir lista­manns­nafni sínu sem minnir á snuðr­andi dýr af ákveð­inni teg­und. Hvað kallar Broadus sig?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þetta er umslag vin­sællar plötu sem kom út fyrir 53 árum. Hvaða tón­list­ar­maður eða hljóm­sveit gaf út þessa plötu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Cambridge.

2.  Þrjú.

3.  Britney Spears.

4.  Það er aldrei upp­lýst.

5.  Franz Kafka.

6.  Músa­gildran.

7.  Líf katt­ar­ins.

8.  Líbanon.

9.  Hann er ein­eygður.

10.  Snoop Dogg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er film­stjarnan Tilda Swinton.

Neðri myndin sýnir umslag plöt­unnar Led Zeppelin með sam­nefndri hljóm­sveit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár