722. spurningaþraut: Hér má vinna sérstakt Bítlastig, kennt við Gunnar Salvarsson!

722. spurningaþraut: Hér má vinna sérstakt Bítlastig, kennt við Gunnar Salvarsson!

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan sýnir albú­mið á Bítla­plöt­unni Abbey Road. Ég huldi einn bíl­anna á göt­unni og nú er spurn­ingin: Hvernig er sá bíll á lit­inn og af hvaða teg­und er hann? Þið fáið stig ef þið náið ann­að­hvort teg­und­inni eða litnum, en þeir sem hafa hvorttveggja fá sér­stakt Gsal-bítla­stig, kennt við Gunnar Sal­vars­son!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver á að velta sér um koll í lagi Chuck Berrys?

2.  Árið 1927 flaug banda­rískur flug­maður í fyrsta sinn einn yfir Atl­ants­hafið og þótti það mik­ils­háttar afrek. Hvað hét flug­mað­ur­inn?

3.  Milli hvaða tveggja stór­borga flaug hann?

4.  Seinna átti flug­mað­ur­inn eftir að koma við sögu í glæpa­máli sem vakti gríð­ar­lega athygli og end­aði hryggi­lega. Út á hvað gekk það mál?

5.  Hverjir stjórn­uðu á eyj­unni Makau við Kína­strendur þangað til árið 1999?

6.  Árið 1990 var stofnuð í Manchester á Englandi ein af hinum svo­nefndu „drengja­hljóm­sveitum“ og naut hún gríð­ar­legra vin­sælda síð­asta ára­tug síð­ustu aldar. Hún er víst enn starf­andi þótt „drengirnir“ séu komnir um fimm­tugt. Hvaða hljóm­sveit er þetta?

7.  Hvaða tungu­mál er opin­bert mál í fjalla­rík­inu Andorra?

8.  Árið 1988 fóru í fyrsta sinn fram for­seta­kosn­ingar á Íslandi þar sem sitj­andi for­seti fékk mót­fram­boð. Hver vann þessar kosn­ingar? 

9.  Í hvaða landi er borgin Örebro?

10.  Í grískum bók­menntum segir frá Jasoni sem var mik­ill kappi og sótti meðal ann­ars „gullna reifið“ svo­kall­aða. Hann naut aðstoðar göldróttar kon­ungs­dóttur og gengu þau síðan í hjóna­band. Hjóna­bandið end­aði með ósköpum en kon­ungs­dóttir varð börnum þeirra Jasons að bana eftir að hann gerð­ist henni ótrúr. Hvað hét kon­ungs­dóttir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða sjar­mör er að stíga dans á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Beethoven. (Hér er lagið flutt af Bítlunum.)

2. Lind­bergh.

3.  New York og Parísar.

4.  Barni hans var rænt og það myrt.

5.  Portú­galir.

6.  Take That.

7.  Kata­lónska. „Spænska“ er vita­skuld ekki rétt svar.

8.  Vigdís Finn­boga­dóttir.

9.  Svíþjóð.

10.  Medea.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á Bítla­albú­m­inu var um að ræða hvíta Fólksvagen.

Á neðri mynd­inni er Vóló­dó­mír Zelensky núver­andi for­seti Úkraínu að keppa í danskeppni í heima­landi sínu fyrir nokkrum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár