721. spurningaþraut: St.Lucia og St.Kitts & Nevis

721. spurningaþraut: St.Lucia og St.Kitts & Nevis

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ríki til­heyrir það land­fræði­lega fyr­ir­bæri sem við sjáum á mynd­inni hér að ofan? Ég er búinn að ein­angra það svo­lítið á þess­ari mynd.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var ein­ræð­is­herra Sov­ét­ríkj­anna 1928-1953?

2.  Hvernig var tunglið okkar öðru­vísi að sjá í árdaga sól­kerf­is­ins en nú?

3.  Kona sem Alex­andra hét var myrt ásamt fjórum dætrum sínum árið 1918. Hver var hún?

4.  Hvað hét fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna?

5.  Eliza Reid for­seta­frú er menntuð í tveimur greinum. Nefnið að minnsta kosti aðra.

6.  Í hvaða firði á Íslandi er Æðey?

7.  Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir stýrir menn­ing­ar­stofnun einni í Reykja­vík. Hvaða stofnun er það?

8.  Hversu há er Hall­gríms­kirkja í Reykja­vík? Hér má muna tveimur og hálfum metra til eða frá.

9.  Í hvaða hafi — nákvæm­lega talið — eru ríkin St. Lucia og St. Kitts & Nevis?

10.  Hvaða franski kvik­mynda­leik­ari hefur vakið athygli á síð­ustu árum fyrir dyggan stuðn­ing sinn við Pútin Rúss­lands­for­seta — þótt hann styðji víst ekki inn­rás­ina í Úkraínu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið hér að neðan? (Í þess­ari útgáfu hafa litir og skýr­leiki verið lag­aðir tölu­vert.)

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Stalín.

2.  Það var mun nær Jörðinni en nú og því miklu stærra að sjá. Ekkert annað svar gefur stig!

3.  Keis­ara­frú í Rúss­landi.

4.  Washington.

5.  Hún hefur próf­gráður í sögu og alþjóða­sam­skiptum.

6.  Ísa­fjarð­ar­djúpi.

7.  Harpa.

8.  Kirkjan mælist 74,5 metrar svo rétt er allt frá 72 til 77 metra.

9.  Karí­ba­hafi. Atl­ants­hafið er of óná­kvæmt.

10.  Gerard Depar­dieu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Pelóps­skag­ann sem er hluti Grikk­lands.

Á neðri mynd­inni er Síðasta kvöld­mál­tíðin eftir Leonardo da Vinci.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár