720. spurningaþraut: Ekki sakar nú að vita ýmislegt um ríki Bandaríkjanna

720. spurningaþraut: Ekki sakar nú að vita ýmislegt um ríki Bandaríkjanna

Þessi þraut snýst um ríki Banda­ríkj­anna.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá eina af stór­borgum Banda­ríkj­anna. Hún er reyndar sú 16. að íbúa­tölu en oft ber meira á henni en sem því nemur. Í hvaða ríki er hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða ríki er stór­borgin New York?

2.  En í hvaða ríki er stór­borgin San Francisco?

3.  Hvað ert víð­áttu­mesta ríkið?

4.  En hvað er fjöl­menn­ast?

5.  Fámenn­asta ríki Banda­ríkj­anna er líka það aftasta í staf­róf­inu. Hvað heitir það?

6.  Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna hafa flestir for­set­anna fæðst eða átta tals­ins, þar af fjórir af fyrstu fimm for­set­unum?

7.  Hvaða tvö ríki gengu síð­ast í sam­lag Banda­ríkj­anna?

8.  Af 50 ríkjum Banda­ríkj­anna bera 27 nöfn sem komin eru úr nöfnum frum­byggja á svæði, Indíána sem svo köll­uð­ust fyrr á tíð. Hér eru nöfn á sex ríkjum. Hvert þeirra er EKKI komið úr frum­byggja­tungu: Alabama — Arizona — Hawaii — Kali­fornía — Minnesota — Tennessee — Texas.

9.  Hvað er syðsta ríki meg­in­lands Banda­ríkj­anna?

10.  En það austasta, ef miðað er við meg­in­landið, ekki til­fallandi eyjar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða ríkis Banda­ríkj­anna má sjá hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  New York.

2.  Kali­forníu.

3.  Alaska.

4.  Kali­fornía.

5.  Wyoming.

6.  Virginía. For­set­arnir eru í staf­rófs­röð William Henry Harrison, Thomas Jeffer­son, James Madison, James Monroe, Zachary Taylor, John Tyler, George Washington og Woodrow Wilson.

7.  Alaska og Hawaii.

8.  Kali­fornía.

9.  Flórída.

10.  Maine. Ein af eyj­unum við Alaska telst reyndar austar hinum megin á hnett­inum, en í þetta sinn er spurt um Maine.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Seattle er í rík­inu Washington.

Útlín­urnar eru útlínur Texas.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár