719. spurningaþraut: „Ég rúlla“ — um það er spurt hér, og fleira

719. spurningaþraut: „Ég rúlla“ — um það er spurt hér, og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hverjar eru kon­urnar hér að ofan, þær fremstu? Nefna verður báðar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver teikn­aði Þjóð­leik­húsið?

2.  Hvar mun heims­meist­ara­mót karla í fót­bolta fara fram síðar á árinu?

3.  Það heims­meist­ara­mót hefur einu sinni verið haldið í Afríku. Í hvaða landi?

4.  Í síð­ari heims­styrj­öld­inni frömdu Þjóð­verjar og banda­menn þeirra skelfi­leg fjöldamorð á Gyðingum en einnig á fleiri hópum. Hvaða hópur kom næstur á eftir Gyðingum að fjölda fórn­ar­lamba?

5.  Í hvaða hafi eru Andaman-eyjar?

6.  Hvað er óvenju­legt við frum­byggj­ana þar og líf þeirra?

7.  Hvaða íslensk kona hélt fyrst allra opin­beran fyr­ir­lestur hér á landi?

8.  Svo segir í 77. kafla Njáls­sögu: „Rannveig mælti: „Illa fer þér og mun þín skömm lengi uppi.““ Hver var þessi Rannveig?

9.  Og við hvern sagði hún þetta?

10.  „Ég rúlla“ á lat­ínu er notað um bíla­teg­und eina. Hver er hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fána má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Guðjón Sam­ú­els­son.

2.  Katar.

3.  Suður-Afríku.

4.  Rómafólk.

5.  Ind­lands­hafi.

6.  Þeir eru algjör­lega ein­angr­aðir og strang­lega er bannað að rjúfa ein­angrun þeirra.

7.  Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

8.  Móðir Gunnars á Hlíð­ar­enda.

9.  Hall­gerði lang­brók.

10.  Volvo.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru þær fremstar, Ella Fitzgerald og Marilyn Monroe.

Á neðri mynd­inni er fáni Tékk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Laumupúkinn hér... svar við spurningu 6 á nú alls ekki við um allar Andamaneyjar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár