„Hafið okkur í hjörtum ykkar“

Andrej Kúrkov einn þekkt­asti rit­höf­undur Úkraínu biður Íslend­inga að fylgj­ast vel með fréttum af inn­rás Rússa í landið og afleið­ingum hennar og hafa íbúa Úkraínu í hjörtum sínum. Kúrkov flúði síð­ustu helgi frá Kænu­garði og er nú í felum á ótil­greindum stað í vest­ur­hluta lands­ins. Hann hyggst ekki flýja land.

Segir ferðalagið frá Kænugarði hafa verið skelfilegt „Orrustuþotur flugu yfir bílana og við sáum mörg umferðarslys á leiðinni,“ segir Andrej Kúrkov um það sem blasti við á flótta frá Kænugarði. Hann og fjölskylda hans eru komin í skjól í vesturhluta Úkraínu. Myndina tók Kúrkov þegar þau voru föst í bílalestinni sem hann telur að hafi talið tugþúsundir bíla.

„Þær eru lík­lega bik­svartar, blað­síð­urnar sem nú er verið að skrifa í sögu­bók Rúss­lands. Innrásin í Úkraínu mun verða Rúss­landi til ævar­andi skammar,“ segir Andrej Kúrkov rit­höf­undur í sam­tali við Stundina þar sem hann er staddur í vest­ur­hluta Úkraínu en hann og eig­in­kona hans flúðu frá Kænu­garði ásamt vin­konu sinni og syni hennar um síð­ast­liðna helgi.

Kúrkov segir Rússa ekki eiga sér neinar máls­bætur og því muni skömmin vegna árása síð­ustu daga ávallt fylgja þjóð­inni. „Ekkert getur breytt því úr því sem komið er,“ segir Kúrkov sem er einn þekkt­asti rit­höf­undur Úkraínu. Hann er einnig vel þekktur í Rúss­landi og víðar um heim, en skáld­sögur hans hafa verið þýddar yfir á 37 tungu­mál og komið út í 65 löndum. Hann kom til að mynda á Bók­mennta­há­tíð í Reykja­vík árið 2005.  

Pútin nýlega farið að tala eins og Stalín  

Kúrkov skrifar á rúss­nesku, en hann er fæddur í St. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár