Viðar segir ósannar ásakanir hluti af árásum á Sólveigu

Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir í yfir­lýs­ingu að hann hafni því að hafa sýnt kven­fyr­ir­lit­ingu gagn­vart starfs­fólki á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins. Hann segir ásak­anir og tíma­setn­ingu þess að upp­lýs­ingar úr vinnu­staða­grein­ingu var lekið sé liður í her­ferð gegn Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, fyrr­ver­andi for­manni og for­manns­fram­bjóð­anda, í félag­inu.

Viðar segir ósannar ásakanir hluti af árásum á Sólveigu
Tvíeykið Sólveig Anna Jóns­dóttir var kjörin for­maður í Eflingu árið 2018. Stjórn hennar réði svo Viðar Þor­steins­son sem fram­kvæmda­stjóra félags­ins. Þau létu bæði af störfum í lok októ­ber á síð­asta ári eftir hörð átök á skrif­stofu Eflingar.

Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar, er sagður hafa beitt ein­elt­istil­burðum og sýnt af sér kven­fyr­ir­lit­in­ingu gagn­vart starfs­mönnum á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var um líðan starfs­fólks á skrif­stof­unni og kynnt var starfs­mönn­unum í morgun. 

Skýrslan hefur ekki verið birt opin­ber­lega né afhent starfs­mönnum Eflingar. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar eru núver­andi fram­kvæmda­stjóri, for­maður og vara­for­maður Eflingar þeir einu sem hafa skýrsl­una. 

Efni kynn­ing­ar­innar hefur hins vegar komið fram í fjöl­miðlum í morgun og seg­ist Morg­un­blaðið hafa nið­ur­stöð­urnar undir höndum, sem sýni að 90 pró­sent starfs­manna hafi lýst van­líðan vegna fram­komu Viðars og Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, fyrr­ver­andi for­manns. Til­kynn­ing um nið­ur­stöð­urnar var svo send fjöl­miðlum um klukkan hálf þrjú í dag. 

Í henni segir meðal ann­ars að sam­kvæmt grein­endum sé „tölu­vert áhyggju­efni hve starfs­mönnum var tíð­rætt um kyn­bundna áreitni, ofbeldi og ein­elti af hálfu fram­kvæmd­ar­stjóra, að því er virð­ist í skjóli for­manns. Að þeirra mati telst þetta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    48 af 57 ? starfsmönnum er úrtakið. https://www.efling.is/um-eflingu/starfsfolk/ sem er nú tæplega 90 % og þá er eftir að vita hvenær greiningin er gerð og hvað var raunverulega spurt um. Voru þetta 10 mínútna viðtöl þar sem spurt var hvort Sólveig og Viðar hefðu farið illa með þá og þeim gert ljóst að svörin yrðu afhent núverandi stjórn ? Hvenær var könnunin gerð ? Hver bað um hana. Svona má lengi telja... og könnunin harla ótrúverðug. Svona svipað og spyrja hvort menn vilji halda vinnunni eða láta fjarlæga sig. Og óneytanlega væri fróðlegt fyrir félagsmenn að vita launakjör og vinnuumhverfi starfsmannanna... svona sér í lagi þar sem þetta er birt vegna væntanlegra formannskosninga og starfsmönnum ljóst að ef meðlimir Eflingar telja Sólveig og Viðar trúverugri og líklegri til að sinna hagsmunum þeirra en starfsmennirnir .... þá verður margur starfsmaðurinn að taka pokann sinn ef Sólveig vinnur þær kosningar.
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Það er með ólíkindum hvað starfsfólk Eflingar gengur langt til að rægja rétt kjörinn formann Eflingar ? Ef þetta verður ekki stoppað þá getur félagsmaður í Eflingu ekki treyst neinu sem kemur frá starfsmönnum á skrifstofu Eflingar. Þarna virðast saman komin hóppur fólks ,,með allt annað" en að vinna fyrir félagsmenn. Búinn að fylgjast lengi með ákveðnum starfsmönnum Eflingar í störfum innan verkalýðshreyfingarinnar.
    1
    • PB
      Páll Bragason skrifaði
      Sá einhvers staðar að megnið af núverandi starfsólki hefði verið ráðið eftir að Sólveig Anna og Viðar tóku við. Skýtur þetta ástand þá ekki skökku við?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár