„Og nú er bókin komin út. Ég er þreytt. En ég er glöð.“

Í bók­inni Skáld­kona gengur laus — erindi nítj­ándu aldar skáld­kvenna við heim­inn fjallar Guðrún Ing­ólfs­dóttir um fjórar skáld­konur sem eru lítt þekktar eða óþekktar og skoðar hvað þær voru að reyna að segja.

„Í bók­inni Skáld­kona gengur laus – erindi nítj­ándu aldar skáld­kvenna við heim­inn, fjalla ég um fjórar skáld­konur, ýmist lítt þekktar eða alls­endis óþekktar. Það er  vert að taka það fram að á nítj­ándu öld fengu mjög fáar skáld­konur eitt­hvað gefið út eftir sig. Lunginn af kveð­skap kvenna er varð­veittur í hand­ritum,“ segir Guðrún Ing­ólfs­dóttir rit­höf­undur. „Þótt ég fjalli vissu­lega um líf þess­ara kvenna, þá er meg­in­þung­inn á að fjalla um kvæðin þeirra og spyrja spurn­inga eins og: Hvað er þarna? Hvað eru þær að reyna að segja? Hver er skáld­mynd þeirra? Hvernig er heims­mynd þeirra og hug­myndir? Konur áttu mjög lít­inn þátt í að móta alls konar stefnur eins og róm­an­tísku stefn­una og ýmsar stefnur sem voru efst á baugi á þessum tíma. Þess vegna fannst mér að í stað þess að bera þær saman við ein­hverja hefð og strauma sem þær kannski höfðu lítið að segja um, þá væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár