Hvert áfallið á fætur öðru hindraði útgáfu bókarinnar

Meðganga Bók­ar­innar um það sem for­eldrar gera þegar börn eru sofnuð var löng því að ýmsar erf­iðar hindr­anir urðu á leið Lindu Loeskow sem mynd­skreytti sög­una. Hún glímdi við erfið veik­indi og stóð óvænt uppi ein og ólétt. Hún neydd­ist í kjöl­farið til að flytja frá Íslandi til að geta séð sér og dóttur sinni far­borða. Heiðrún Ólafs­dóttir, skap­ari sög­unnar, segir að hún sé marg­slungin, dálítið drauga­leg og það örli á hræðslu­á­róðri en líka skand­in­av­ísku raun­sæi.

Hvert áfallið á fætur öðru hindraði útgáfu bókarinnar

Systk­inin Stína og Steinn eru að fara að sofa. Mamma þeirra og pabbi eru búin að lesa fyrir þau og kyssa þau góða nótt en Stína og Steinn skilja ekki af hverju for­eldar þeirra þurfa að fara fram.

Systk­inin liggja vak­andi í koj­unum sínum og velta fyrir sér hvaða full­orð­ins­dót þetta sé eig­in­lega? Þau spyrja hvort mamma og pabbi séu að fara að halda partí, hvort þjófar hafi komið og stolið þeim. Hvort þau séu að háma í sig sæl­gæti eða hvort þau hafi kannski breyst í geim­verur.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár