Starfsfólk Eflingar segir þau ekki hafa viljað að Sólveig Anna segði af sér

Í yfir­lýs­ingu trún­að­ar­manna Eflingar fyrir hönd starfs­fólks segir að ekki hafi verið mein­ingin að lýsa van­trausti á Sólveigu Önnu Jóns­dóttur eða hrekja hana úr starfi. Yfir­lýs­ingin hafi verið hugsuð sem skref í átt að lausn.

Starfsfólk Eflingar segir þau ekki hafa viljað að Sólveig Anna segði af sér
Segjast ekki hafa viljað hrekja Sólveigu Önnu úr starfi Í yfir­lýs­ingu starfs­fólks Eflingar segir að yfir­lýs­ing þeirra síð­ast­lið­inn föstu­dag hafi verið hugsuð sem fyrsta skref í átt að lausn á þeim vanda­málum sem uppi væru á skrif­stofu félags­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það var ekki vilji eða mein­ing starfs­manna­fundar starfs­fólks Eflingar síð­ast­lið­inn föstu­dag að Sólveig Anna Jóns­dóttir segði af sér sem for­maður stétt­ar­fé­lags­ins. Vilji starfs­manna hafi staðið til þess að inn­an­hús­vanda­mál yrðu leyst í sam­vinnu við yfir­menn stétt­ar­fé­lags­ins.

Trún­að­ar­menn starfs­fólks skrif­stofu Eflingar hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu, fyrir hönd starfs­fólks, þar sem þetta kemur fram. Sem kunn­ugt er sagði Sólveig Anna af sér sem for­maður eftir umræddan fund síð­ast­lið­inn föstu­dag. Á honum gerði hún starfs­fólki grein fyrir því að tveir kostir væru í stöð­unni, annað hvort sendi starfs­fólkið út skrif­lega yfir­lýs­ingu þar sem bornar yrðu til baka lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna stétt­ar­fé­lags­ins frá því í júní síð­ast­liðnum, eða að hún segði af sér for­mennsku.

Starfs­fólkið fund­aði í kjöl­farið og sendi frá sér yfir­lýs­ingu ann­ars vegar til Rík­is­út­varps­ins og hins vegar til stjórn­enda Eflingar. Sólveig Anna leit svo á að í þeim álykt­unum kæmi fram stað­fest­ing á ályktun trún­að­ar­manna og leit hún því svo á að um van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur sér væri að ræða. Þar með væri henni ekki sætt lengur á stóli for­manns.

„Það var ekki vilji eða mein­ing starfs­manna­fund­ar­ins á föstu­dag að for­maður félags­ins segði af sér“

Í nýrri yfir­lýs­ingu starfs­fólks Eflingar kemur fram að yfir­lýs­ingin síð­asta föstu­dag hafi ekki verið sett fram í þeim til­gangi að lýsa van­trausti á Sólveigu Önnu.

„Það var ekki vilji eða mein­ing starfs­manna­fund­ar­ins á föstu­dag að for­maður félags­ins segði af sér. Starfs­fólk félags­ins hefur unnið af heilum hug sam­kvæmt þeirri stefnu sem for­ysta félags­ins hefur sett síð­ustu ár. Fjöldi starfs­manna félags­ins starfar hér vegna þeirrar bar­áttu sem Sólveig hefur háð. Þau vanda­mál sem starfs­fólk ræddi, vildi starfs­fólk leysa í sam­vinnu við yfir­menn. 

Yfir­lýs­ingin á föstu­dag var ekki sett fram í þeim til­gangi að lýsa van­trausti eða hrekja nokkurn úr starfi. Hún var hugsuð sem fyrsta skref á leið til lausnar.

Starfs­fólk er, sem endranær, að vinna fyrir félags­menn með þeirra hag fyrir brjósti.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna full­yrðir að nýr vara­for­seti ASÍ verði „einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.
Sólveig Anna segir lögfræðing ASÍ lýsa stuðningi við mann sem hafi hótað henni
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár