Segir Sólveigu Önnu hafa reynt að beita sig persónulegri kúgun

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, segir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, fyrr­ver­andi for­mann stétt­ar­fé­lags­ins, hafa reynt að kúga sig vegna per­sónu­legra mála.

Segir Sólveigu Önnu hafa reynt að beita sig persónulegri kúgun
Gagn­rýn­inn Guð­mundur seg­ist hafa gagn­rýnt stjórn­ar­hætti Sól­veigar Önnu.

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Eflingu, segir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, sem sagt hefur af sér sem for­maður Eflingar, hafa haldið lykil­upp­lýs­ingum leyndum fyrir stjórn­inni til að hylma yfir van­líðan starfs­fólks.

Greint var frá gagn­rýni Guð­mundar á hendur stjórn­enda Eflingar í fréttum Rík­is­ú­varps­ins síð­stlið­inn föstu­dag. Þar sagði að Guð­mundur hefði ítrekað reynt að fá í hendur ályktun trún­að­ar­manna starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar um stjórn­ar­hætti Sól­veigar Önnu frá því í júní, en án árang­urs.

Frétta­flutn­ingur Rík­is­út­varps­ins varð síðan til þess að Sólveig Anna greindi starfs­fólki Eflingar frá því á föstu­dag­inn að tveir kostir væru í stöð­unni. „Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­in­u.“ Úr varð að starfs­fólk sendi frá sér álykt­anir til stjórn­enda Eflingar og til Rík­is­út­varps­ins sem Sólveig Anna túlk­aði sem afdrátt­ar­lausa stað­fest­ingu á því sem fram hefði komið í ályktun trún­að­ar­manna frá því í júní. Við slíka van­trausts­yf­ir­lýs­ingu gæti hún ekki búið og sagði hún því af sér sem for­maður.

„Þegar ég gekk á eftir álykt­un­inni var mér ekki aðeins ítrekað neitað um hana heldur gerð til­raun til að beita mig per­sónu­legri kúgun á grund­velli þess að for­mað­ur­inn hefði aðstoðað mína nán­ustu.“

Í til­kynn­ingu sem Guð­mundur sendi blaða­manni Stund­ar­innar segir hann að alvar­legur trún­að­ar­brestur hafi orðið þegar Sólveig Anna hafi neitað að kynna stjórn Eflingar starfs­loka­samn­ing við frá­far­andi skrif­stofu­stjóra í upp­hafi þessa árs. Því hafi verið borið við að þær upp­lýs­ingar kæmu stjórn­inni ekki við, skrifar Guð­mundur. Þá hafi stjórn einnig verið neitað um kynn­ingu á ályktun trún­að­ar­manna um stjórn­un­ar­vanda á skrif­stofu Eflingar í júní síð­ast­liðnum. „Þegar ég gekk á eftir álykt­un­inni var mér ekki aðeins ítrekað neitað um hana heldur gerð til­raun til að beita mig per­sónu­legri kúgun á grund­velli þess að for­mað­ur­inn hefði aðstoðað mína nán­ustu.“

Segir Sólveigu Önnu hafa slegið á sáttarhönd

Guð­mundur segir að hann hafi lagt fram þá til­lögu að utan­að­kom­andi ráð­gjafi legði mat á starf­semi Eflingar til að leita lausna en því hafi verið hafnað. Enginn í stjórn Eflingar hafi stutt hann í því máli og enga hjálp hafi verið að fá hjá Starfs­greina­sam­band­inu eða Alþýðu­sam­bandi Íslands, þrátt fyrir að fyrir lægi, að sögn Guð­mundar, að stjórn Eflingar ætti fullan rétt á að fá allar lykil­upp­lýs­ingar um starf­semi Eflingar í hendur.

Sólveig Anna hafi þá hvorki brugð­ist við áskorun starfs­manna um betrumbætur eða geng­ist við ábyrgð sinni sem for­maður. „Þvert á móti hefur hún skellt skuld­inni á mig og starfs­menn sína. Botninum náði hún svo þegar hún krafð­ist þess að starfs­menn veldu á milli þeirra sjálfra og hennar á starfs­manna­fundi síð­ast­lið­inn föstu­dags­morgun. Í kjöl­farið sló hún í síð­asta sinn á sátt­ar­hönd starfs­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna full­yrðir að nýr vara­for­seti ASÍ verði „einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.
Sólveig Anna segir lögfræðing ASÍ lýsa stuðningi við mann sem hafi hótað henni
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár