Allt í lausu lofti á skrifstofu Eflingar

Sólveig Anna Jóns­dóttir til­kynnti afsögn sína sem for­maður stétt­ar­fé­lags­ins í gær vegna van­trausts starfs­fólks í hennar garð. Hvorki næst í Sólveigu Önnu né Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóra. Starfs­fólk á skrif­stofu lýsir stöð­unni þannig að allt sé í lausu lofti.

Allt í lausu lofti á skrifstofu Eflingar
Hætt sem for­maður Sólveig Anna Jóns­dóttir hefur sagt af sér sem for­maður Eflingar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ekki er svarað í síma á skrif­stofu Eflingar stétt­ar­fé­lags vegna starfs­manna­fundar sem virð­ist hafa dreg­ist veru­lega á lang­inn. Sé hringt í stétt­ar­fé­lagið svarar sím­svari sem segir að skrif­stofan opni klukkan níu vegna starfs­manna­fundar en alla jafna opnar skrif­stofan klukkan 8:15. Klukkan 10:10 svar­aði sá sím­svari enn.

Stundin hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að ná í for­svars­fólk Eflingar, sem og starfs­fólk skrif­stofu í morgun, en án árang­urs. Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður félags­ins greindi frá því í stöðu­færslu á Facebook í gær­kvöldi að hún hefði til­kynnt stjórn stétt­ar­fé­lags­ins afsögn sína. Ástæðan er við­brögð starfs­fólks Eflingar eftir að Sólveig Anna ávarp­aði það síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Sögð halda úti „aftökulista“

Ástæða þess að Sólveig Anna ávarp­aði starfs­fólk var sú að trún­að­ar­menn starfs­fólks á skrif­stofu Eflingar sam­þykktu ályktun 9. júní síð­ast­lið­inn sem send var á hana og aðra stjórn­endur félags­ins. Í umræddri ályktun mun Sólveig Anna hafa verið sökuð um að halda úti „aftöku­lista“ yfir starfs­fólk sem henni væri ekki þókn­an­legt og að hún hefði brotið kjara­samn­inga með fyr­ir­vara­lausum upp­sögnum, auk ann­ars. Í stöðu­upp­færslu sinni segir Sólveig Anna að hanni hafi verið brugðið vegna texta álykt­un­ar­innar „sem var ekki sann­leik­anum sam­kvæmur og að mínu mati skrif­aður af miklu dóm­greind­ar­leysi, en ég bland­aði mér þó ekki í þetta mál heldur fól öðrum stjórn­endum að bregð­ast við, sem þau gerðu hratt og fag­lega. Skrifleg stað­fest­ing barst frá trún­að­ar­manni þar sem mál­inu var sagt lokið.“

Á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku hafði frétta­maður Rík­is­út­varps­ins sam­band við Sólveigu Önnu til að spyrja hana út í umrædda ályktun. Í kjöl­far þess ákvað hún að ávarpa starfs­fólk skrif­stofu Eflingar að morgni síð­asta föstu­dags. „Ég sagði við starfs­fólk á þessum fundi að það væru tveir kostir í stöð­unni. Annað hvort kæmi eitt­hvað skrif­legt frá þeim sem myndi bera til baka ofstæk­is­fullar lýs­ingar úr ályktun trún­að­ar­manna og orð sem frétta­maður not­aði um „ógn­ar­stjórn“, eða að ég myndi segja af mér for­mennsku í félag­in­u.“

Yfirlýsingar starfsfólks staðfesta vantraust

Starfs­fólk Eflingar fund­aði í kjöl­farið og setti saman ályktun sem send var stjórn­endum Eflingar og til Rík­is­út­varps­ins. „Í þessum álykt­unum kemur fram afdrátt­ar­laus stað­fest­ing á þeim orðum sem var að finna í ályktun trún­að­ar­manna frá í júní. Talað er á þeim nótum að alvar­leg vanda­mál séu við­var­andi sem þurfi að leysa með funda­höldum og öðru. Krafist er auk­ins valds fyrir trún­að­ar­menn vinnu­stað­ar­ins og tíð­ari vinnu­staða­funda, þar sem mögu­leg van­líðan ein­stakra starfs­menna verði fund­ar­efni. Í yfir­lýs­ingu til RÚV er jafn­framt engin til­raun gerð til að bera til baka ásak­anir um ógn­ar­stjórn. Álykt­an­irnar eru van­trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og til allra þeirra sem bera ábyrgð á starfs­manna­málum vinnu­stað­ar­ins,“ skrif­aði Sólveig Anna á Facebook í gær.

„Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Efl­ingar sem í reynd hrekur mig úr starfi“
Sólveig Anna Jóns­dóttir
frá­far­andi for­maður Eflingar

Vegna þessa telur Sólveig Anna sér ófært að sitja áfram sem for­maður félags­ins og ákvað að hlíta þeirri afdrátta­lausu van­traust­s­til­lögu sem komi fram í yfir­lýs­ingu starfs­fólks­ins.  „Ég get ekki gegnt stöðu for­manns í félag­inu að svo komnu máli og hef ég til­kynnt stjórn Efl­ingar um afsögn mína. Mér þykir það ótrú­legt að það sé starfs­fólk Efl­ingar sem í reynd hrekur mig úr starfi, með því að leyfa and­stæð­ingum félags­ins að hossa sér á ýkj­um, lygum og rang­færslum um mig og sam­verka­fólk mitt. Starfs­fólk Efl­ingar hefur kosið að svipta mig því vopni sem hefur gert mér mögu­legt að leiða sögu­lega og árang­urs­ríka bar­áttu verka- og lág­launa­fólks síð­ustu ár, mann­orði mínu og trú­verð­ug­leika.“

Hættir líkaViðar Þor­steins­son hyggst fylgja Sólveigu Önnu og hætta hjá Eflingu.

Viðar hættir líka

Kjarninn greindi frá því í morgun að Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, hyggð­ist afhenda upp­sagn­ar­bréf sitt síðar í dag. Viðar var ráð­inn til starfa sem fram­kvæmda­stjóri félags­sviðs stétt­ar­fé­lags­ins í maí 2018 í eftir að Sólveig Anna var kjörin for­maður þess. Mun mjög náin sam­vinna hafa verið milli þeirra tveggja.

Stundin hefur hvorki náð tali af Sólveigu Önnu né Viðari í morgun. Í stuttum sam­skiptum við Viðar í gegnum spjall­for­rit sagð­ist hann ekki myndi tjá sig um málið að svo stöddu. Starfs­maður skrif­stofu Eflingar sem Stundin náði sam­bandi við lýsit því að allt væri í lausu lofti en von­að­ist til að yfir­lýs­ing vegna máls­ins yrði gefin út innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Afsögn Sólveigar Önnu

FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna full­yrðir að nýr vara­for­seti ASÍ verði „einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár