„Er fólk tilbúið að fórna lífsgæðum, hamingju og heilsu verkafólks fyrir þennan stöðugleika?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir býður sig fram til for­manns í stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu. Hún er aktí­visti og einn „nímenn­ing­anna“ sem voru sýknuð af árás á Alþingi. Hún segir ekki hægt að lifa á þeim töxtum sem lág­launa­fólk fær greidda.

„Er fólk tilbúið að fórna lífsgæðum, hamingju og heilsu verkafólks fyrir þennan stöðugleika?“
Sólveig Anna Jóns­dóttir Býður sig fram í for­mennsku hjá Eflingu gegn fram­bjóð­anda sitj­andi stjórnar. Mynd: Kristinn Magnússon

„Efling er stórt félag sem ætti að vera öfl­ugt, en hefur verið að sam­þykkja kjara­samn­inga sem allir í sam­fé­lag­inu sjá að duga ekki til að lifa af,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir. Hún býður sig fram til for­manns Eflingar, en þetta er í fyrsta sinn í sögu félags­ins sem mót­fram­boð berst. Líkur eru því á kosn­ingum í apríl, en Ingvar Vigur Hall­dórs­son leiðir lista sem upp­still­inga­nefnd, stjórn og trún­að­ar­ráð Eflingar styður.

„Á ein­hverjum tíma­punkti hættu verka­lýðs­fé­lögin að fún­kera sem fram­varða­sveit bar­átt­unnar fyrir bættu lífi launa­fólks og urðu ein­hvers konar örygg­is­vent­ill til að við­halda svoköll­uðum stöð­ug­leika í sam­fé­lag­inu,“ segir Sólveig. „Við neitum því að ábyrgðin á þessum stöð­ug­leika liggi hjá okkur á meðan kap­ít­alist­arnir kom­ast upp með að sölsa undir sig æ meira af sam­eig­in­legum auði. Vill fólk búa í sam­fé­lagi stöð­ug­leika ef lægstu lög sam­fé­lags­ins lifa lífi sem er óboð­legt? Er fólk til­búið að fórna lífs­gæðum, ham­ingju og heilsu verka­fólks fyrir þennan stöð­ug­leika?“

Sólveig er tveggja barna móðir, gift Magnúsi Sveini Helga­syni sagn­fræð­ingi. Síðan 2008 hefur hún starfað sem ófag­lærður leik­skóla­starfs­maður hjá Reykja­vík­ur­borg. Hún seg­ist því þekkja lág­launa­stefnu á eigin skinni. „Ef við skoðum lægstu taxta félags­manns í Eflingu með 5 ára starfs­reynslu, þá eru það um 250 þús­und, sem þýðir að sú mann­eskja fær 212 þús­und krónur inn á reikn­ing­inn sinn til að lifa af,“ segir Sólveig. „Það er eitt­hvað mjög mikið að í félag­inu og þeirri bar­áttu sem það hefur að reka fyrir hönd félags­manna sinna ef það sam­þykkir þennan taxta.“

Sýknuð af árás á Alþingi

Sólveig hefur verið áber­andi í sam­fé­lags­málum und­an­far­inn ára­tug. Hún er einn af skipu­leggj­endum Róttæka sum­ar­há­skól­ans og með­limur í hinum nýstofn­aða Sós­í­alista­flokki Íslands. Sólveig var ein hinna svoköll­uðu „nímenn­inga“ sem voru hand­tekin voru eftir mót­mæli 8. des­em­ber 2008 í tengslum við Bús­á­halda­bylt­ing­una. Nímenn­ing­arnir voru sýkn­aðir af alvar­leg­ustu ákærunni fyrir árás á sjálf­ræði Alþingis, en Sólveig var hins vegar sektuð um 100.000 kr. fyrir að halda þing­verði föstum. Í kjöl­far Bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar var Sólveig ein af stofn­endum Íslands­deildar ATTAC sam­tak­anna, alþjóð­legra sam­taka fyrir lýð­ræð­is­legu eft­ir­liti með fjár­mála­mörk­uðum og stofn­unum þeirra. Samtökin hafa beitt sér gegn hnatt­væð­ingu á for­sendum kap­ít­al­isma með útgáfu og mót­mælum.

„Við horfum á sögu verka­lýðs­bar­áttu bæði hér og erlendis og við sjáum að þegar verka­fólk nær miklum árangri þá er það vegna þess að það hefur náð mik­illi fjölda­sam­stöðu og sýnt þeim sem fara með völdin að það er ekki hægt að reka sam­fé­lagið án þátt­töku okkar,” segir Sólveig. „Ef við lítum á líf lág­launa­fólks þá blasir ósann­girnin alls staðar við. Við vinnum mikið, langa daga, með miklu álagi, bæði and­legu og lík­am­legu, fyrir mjög litlar tekjur. Það gerir það að verkum að við getum ekki ráðið við hús­næð­is­mark­að­inn eins og hann er orð­inn og við getum aldrei lagt neitt fyrir og tryggt okkur og fjöl­skyldum okkar öruggt líf.“

Í umfjöllun Stund­ar­innar árið 2016 um veru­leika starfs­manna í leik­skólum lýsti Sólveig því að hún þyrfti að vinna á kvöldin og um helgar til þess að geta fram­fleytt sér. „Hér eru mennt­aðir leik­skóla­kenn­arar sem sitja sveittir og prjóna og selja varn­ing­inn til erlendra ferða­manna og ég vinn með tveimur konum sem fara eftir sinn fulla vinnu­dag og skúra ann­ars staðar, fimm sinnum í viku. Þetta er ekk­ert eins­dæmi. Þú getur farið inn á hvaða kvenna-lág­launa­vinnu­stað sem er og þú munt heyra sömu sögu,“ sagði hún.

Þá gagn­rýndi hún að fólk, sem hefði ekki slíka reynslu, stigi fram og byði fram töfra­lausnir. „Ég afber ekki for­rétt­inda­blindu þessa fólks sem vinnur sína vinnu, er með sín góðu laun og öll þau fríð­indi sem fylgja þeirra vinnu, og láta síðan eins og það séu ein­hverjar töfra­lausnir á vand­anum sem við glímum við. Það er reyndar ein­föld lausn við vand­anum sem við glímum við – og hún er aukið fjár­magn.“

Grimmilegt eðli kerfisins

Efling er eitt stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, með 28 þús­und félags­menn. Þrír á fram­boðs­lista Sól­veigar eru af erlendum upp­runa, en inn­flytj­endur eru stór hluti félags­manna Eflingar. Einn stuðn­ings­manna fram­boðs­ins er Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sem felldi sitj­andi for­mann í kosn­ingum í fyrra. Hefur hann, eins og Sólveig, verið mjög gagn­rýn­inn á for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

„Eftir því sem grimmi­legt eðli kerf­is­ins sem við búum inni í opin­ber­ast mun fólk ekki sætta sig lengur við að vera ann­ars vegar notað sem ódýrt vinnu­afl og hins vegar eiga að bera ábyrgð á vel­ferð­ar­kerf­inu og skatt­kerf­inu á meðan ríkt fólk hegðar sér eins og það sýn­ist, tekur ekki sam­fé­lags­lega ábyrgð og flytur pen­inga í skatta­skjól,“ segir Sólveig að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár