Ráðherrar aðgerðarlitlir frá kosningum

Mikill munur er á fram­göngu ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar eftir alþing­is­kosn­ingar og því sem var fyrir kosn­ingar. Fátt er um útgjalda­vekj­andi eða stefnu­mót­andi aðgerðir. Á síð­ustu vik­unum fyrir kosn­ingar veittu ráð­herrar millj­ónir á millj­ónir ofan í aðskilin verk­efni auk þess sem ýmsar aðgerðir þeirra leiddu af sér skuld­bind­ingar til langs tíma.

Ráðherrar aðgerðarlitlir frá kosningum
Fátt að frétta Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa haft mun minna umleikis vik­urnar eftir kosn­ingar heldur en þeir höfðu í aðdrag­anda þeirra. Mynd: Stjórnarráðið

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa haldið mun fastar um veskið frá kosn­ingum heldur en þeir gerðu í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Þá hafa þeir í fæstum til­vikum tekið ákvarð­anir sem leiða af sér skuld­bind­ingar til langrar fram­tíðar eða eru stefnu­mót­andi. Enn hefur ekki verið mynduð ný rík­is­stjórn og þing hefur ekki komið saman, sem gerir þing­mönnum ill­fært að sýna fram­kvæmda­vald­inu aðhald.

Í 142. tölu­blaði Stund­ar­innar, sem kom út 24. sept­em­ber, dag­inn fyrir alþing­is­kosn­ingar, var fjallað um aðgerðir ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar. Á síð­ustu fjórum vik­unum í aðdrag­anda kosn­ing­anna veittu ráð­herrar veru­lega fjár­muni til aðskil­inna verk­efna og komu umdeildum málum í höfn, allt á meðan að Alþingi var ekki að störfum og þing­menn höfðu því tak­mark­aðri tæki­færi en ella til að veita fram­kvæmda­vald­inu aðhald.

Friðlýsingarsproti og leikmunur í kosningaleikriti

Þannig und­ir­rit­aði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sex frið­lýs­ingar á mis­mun­andi svæðum á land­inu síð­ustu fjórar vik­urnar fyrir kosn­ingar, sem urðu til­efni tölu­verðrar gagn­rýni, ekki síst af hálfu þing­manna hinna stjórn­ar­flokk­anna. Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lýsti því svo að ráð­herra hefði farið um landið með „frið­lýs­inga­sprot­ann í skjóli nætur“.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra veitti á sama tíma tug­millj­óna styrki til félaga­sam­taka, til aðgreindra sér­verk­efna innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og birti jafn­framt drög að reglu­gerð sem heim­ila myndi sam­kyn­hneigðum karl­mönnum að gefa blóð. Yfir­læknir Blóð­bank­ans var meðal þeirra sem gagn­rýndi drögin og sagði Svandísi með þeim setja þjón­ustu Blóð­bank­ans fram sem „leik­mun í kosn­inga­leik­riti“.

Á sama tíma­bili skrif­aði Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra undir fjölda samn­inga sem skuld­binda ríkið fjár­hags­lega til næstu ára upp á tugi eða hund­ruð millj­óna króna. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir var á þessum tíma hvað stór­tæk­ust en hún ýtti úr vör verk­efnum fyrir um 4,3 millj­arða króna á sex daga tíma­bili rétt fyrir kosn­ing­arnar.

Ekkert þing og ekkert eftirlit

Rúmar fjórar vikur er nú liðnar frá alþing­is­kosn­ingum. Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna sitja enn við stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður en sinna þess á milli störfum sínum sem ráð­herrar, rétt eins og sam­ráð­herrar þeirra í rík­is­stjórn­inni, sem enn situr að völdum. Á sama tíma hefur þing enn ekki verið sett og deilt er um hverjir hafi raun­veru­lega verið kjörnir til setu á alþingi. Því eru þing­nefndir ekki starf­andi, utan und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa. Þingmenn hafa því engin tök á að veita fram­kvæmda­vald­inu aðhald með hefð­bundnum leiðum, ekki er hægt að fara fram á sér­stakar umræður um mál, ekki er hægt að kalla eftir skýrslum eða leggja fram fyr­ir­spurnir til ráð­herra.

Þetta hefur ekki síst krist­all­ast í gagn­rýni á sölu Símans á Mílu til franska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian France SA. Þannig gagn­rýndi nýkjör­inn þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Kristrún Mjöll Frosta­dóttir, að ekki hafi verið hægt að ræða söl­una á svo mik­il­vægu inn­viða­fyr­ir­tæki á þingi.

Sigurður Ingi hvað atkvæðamestur

En sem fyrr segir hafa ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar haft hæg­ara um sig að afloknum kosn­ingum en þeir gerðu fyrir kosn­ingar. Séu litið til þeirra frétta sem birtar hafa verið á vef­síðum ráðu­neyt­anna sést að þær aðgerðir og þau verk­efni sem ráð­ist hefur verið í á síð­ustu vikum hafa einkum verið hefð­bundin verk­efni, án veru­legra stefnu­mark­andi ákvarð­anna eða fyr­ir­heita um fjár­út­lát. Svo dæmi sé tekið hefur Guð­laugur Þór Þórð­ar­son einkum tekið þátt í ráð­stefnum og fundum síð­ustu daga, til að mynda kjör­dæm­is­fundi Alþjóða­bank­ans, fundi utan­rík­is­ráð­herra Norð­ur­landa um Afganistan og Hring­borði norð­ur­slóða.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hefur þó haft í ýmsu að snú­ast utan þess að reyna að mynda rík­is­stjórn. Þannig sam­þykkti Sigurður Ingi hinn 11. októ­ber til­lögu ráð­gjaf­ar­nefndar Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga um að hækka útgjalda­jöfn­un­ar­fram­lag sjóðs­ins um einn millj­arð króna vegna yfir­stand­andi árs. Alls verða útgjalda­jöfn­un­ar­fram­lög á árinu því 11 millj­arðar króna. Áður hafði ráð­herra sam­þykkt til­lögur ráð­gjaf­ar­nefndar Jöfn­un­ar­sjóðs vegna þjón­ustu við fatlað fólk á næsta ári, alls 19,2 millj­arða króna, fram­lög vegna jöfn­unar á tekju­tapi vegna fast­eigna­skatts upp á tæpa 4,9 millj­arða króna,fram­lög til útgjalda­jöfn­unar upp á 11,2 millj­arða og almenn jöfn­un­ar­fram­lög til rekst­urs grunn­skóla upp á rúma 11,8 millj­arða króna. Rétt er að geta þess að um venju­bundin verk­efni er að ræða, með stoð í lögum og reglu­gerðum.

Sigurður Ingi stað­festi þá 5. októ­ber til­lögur um verk­efna­styrki á grund­velli stefnu­mót­andi byggða­á­ætl­unar fyrir árin 2018 til 2024. Úthlutað var 36 millj­ónum króna til sjö verk­efna á yfir­stand­andi ári og því næsta, en mark­miðið er að styðja við þróun almenn­ings­sam­gangna um allt land.

Þá und­ir­rit­aði Sigurður Ingi samn­ing um stuðn­ing við áfram­hald­andi þróun svæð­is­garðs á Snæ­fells­nesi, sam­starfs­vett­vangs sveit­ar­fé­laga og atvinnu­lífs á svæð­inu. Var samn­ing­ur­inn gerður með vísan til fjár­laga yfir­stand­andi árs þar sem 15 millj­ónum króna var veitt í fram­lagt til svæð­is­garðs­ins.

Enn í nægu að snúast í heilbrigðisráðuneytinu

Sem fyrr hefur álag í heil­brigð­is­kerf­inu, einkum vegna Covid-19, orðið til þess að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur fundið sig knúna til að bregð­ast við með ýmsum hætti. Þannig var til­kynnt 18. októ­ber síð­ast­lið­inn ný sextán rýma end­ur­hæf­ing­ar­deild verði opnuð á Landa­koti í byrjun næsta mán­aðar og í byrjun febr­úar fjölgi rýmunum um fjórtán til við­bótar. Þá var ákveðið að koma á fót allt að sex hágæslu­rýmum á Land­spít­ala og voru tvö opnuð nú í mán­uð­inum. Eru aðgerð­irnar ætl­aðar til að létta álagi af Land­spít­ala og í frétt á vef ráðu­neyt­is­ins er til­greint að unnið sé að fleiri slíkum aðgerðum. Ekki kemur fram hvaða kostn­aður hlýst af.

Að sama skapi hefur ráð­herra tekið ýmsar ákvarð­anir í tengslum við Covid-19 far­ald­ur­inn, á grunni minn­is­blaða sótt­varn­ar­læknis, en án þess að umræða hafi farið fram um þær ákvarð­anir á vett­vangi Alþingis. Hinar afdrifa­rík­ustu voru kynntar 19. októ­ber þar sem til­kynnt var um veru­legar til­slak­anir á sótt­varn­ar­reglum strax dag­inn eftir og að stefnt væri að fullri aflétt­ingu allra sam­komu­tak­mark­ana 18. nóv­em­ber. Síðan þá hefur heil­brigð­is­starfs­fólk komið fram og talað á þeim nótum að óhjá­kvæmi­legt kunni að reyn­ast að herða aðgerðir að nýju, þar á meðal Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Sem fyrr hefur ekki verið hægt að ræða ákvarð­anir Svan­dísar á þingi þar eð það hefur ekki komið saman.

Þá lá Svandís undir ámæli þing­manna í fjöl­miðlum fyrir að hafa aðeins haft umsókn­ar­frest um stöðu for­stjóra Land­spít­ala til tveggja vikna, eftir að Páll Matth­í­as­son sagði starfi sínu lausu skyndi­lega 5. októ­ber síð­ast­lið­inn. Svandís fram­lengdi umsókn­ar­frest­inn til 8. nóv­em­ber.

Ráðuneyti í lága drifinu

Aðrir ráð­herrar hafa, sam­kvæmt vef­síðum ráðu­neyt­anna, verið rólegir í tíð­inni. Þannig hafa til að mynda aðeins fjórar fréttir birst á síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, tvær aug­lýs­ingar um dag­pen­inga og akst­urs­gjald, frétt um góða stöðu íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins og frétt um minni þörf á sér­tækum efna­hags­stuðn­ing sam­hliða efna­hags­bata. Hið sama má segja um félags­mála­ráðu­neytið, þar hafa aðeins verið birtar fjórar fréttir og er engin þeirra um mark­verðar aðgerðir ráðu­neyt­is­ins sem skapa útgjöld eða hafa stefnu­mark­andi áhrif.  

Rík­is­stjórnin sjálf sam­þykkti 19. októ­ber að að veita þremur millj­ónum króna af ráð­stöf­un­arfé sínu til Menn­ing­ar­fé­lags Akur­eyrar og Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Norð­ur­lands vegna upp­setn­ingar á óper­unni La Traviata.

Aðgerðir ráð­herra nú eftir kosn­ingar hafa því verið í lága drif­inu, borið saman við það sem á gekk fyrir kosn­ingar. Enn hefur ekki verið til­kynnt um hvenær þing verði kallað saman og enn hefur lítið heyrst af stöðu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna. Á meðan sitja ráð­herrar áfram í stólum sínum, án virks aðhalds lög­gjaf­ar­sam­kund­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár