Ríkisstjórnin örugg: Stórsigur Framsóknar bætir upp fylgishrun VG

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og bætir við sig fimm þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum. VG tapar fylgi og þremur mönnum en Sjálf­stæð­is­flokkur heldur velli en tapar fylgi.

Ríkisstjórnin örugg: Stórsigur Framsóknar bætir upp fylgishrun VG
Sigurður Ingi Jóhanns­son gæti mögu­lega myndað nýja rík­is­stjórn. Mynd: Norden

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir halda meiri­hluta sínum og vel það. Samtals fá þeir 37 þing­menn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stækkar veru­lega og fær þrettán þing­menn; fimm fleiri en í síð­ustu kosn­ingum. Vinstri græn tapa aftur á móti veru­lega og missa þrjá.

Flokkur fólks­ins bætir við sig og fær 8,85 pró­esnt atkvæða, sem tryggir flokknum sex þing­sæti. Flokk­ur­inn fékk fjóra menn kjörna síð­ast en rak svo hálfan þing­flokk­inn. 

Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir, Viðreins, Píratar og Sam­fylk­ing, upp­skáru öll minna en kann­anir höfðu gefið til kynna. Sam­fylk­ing tapar þing­manni frá síð­ustu kosn­ingum en Viðreisn bætir við einum. Píratar standa í stað. 

Mið­flokk­ur­inn hrundi í kosn­ing­unum en náði tveimur kjör­dæma­kjörnum þing­mönnu mauk þess að fá jöfn­un­ar­mann. Flokk­ur­inn fékk 5,45 pró­sent atkvæða. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk ekk­ert þing­sæti og rétt rúm­lega 4 pró­sent atkvæða. Það hljóta að telj­ast von­brigði þar sem flokk­ur­inn hafði mælst tvö­falt sterk­ari í könn­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár