Kosningarnar kærðar

Magnús Davíð Norðdahl, odd­viti Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur ákveðið að kæra kosn­ing­arnar í kjör­dæm­inu til kjör­bréfa­nefndar Alþingis og fara fram á svo­kall­aða upp­kosn­ingu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Karl Gauti Hjalta­son, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins, kærir til lög­reglu.

Kosningarnar kærðar
Kærir kosn­ing­una í Norð­vest­ur­kjör­dæmi Magnús Davíð Norðdahl odd­viti Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefur ákveðið að kæra kosn­ing­arnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til kjör­bréfa­nefndar Alþingis. Mynd: Heida Helgadottir

Í yfir­lýs­ingu frá Magnúsi Davíð Norðdahl, odd­vita Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, segir að Magnús hafi ákveðið að kæra kosn­ing­arnar í kjör­dæm­inu til kjör­bréfa­nefndar Alþingis og fara fram á svo­kall­aða upp­kosn­ingu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í kjör­dæm­inu. „Ljóst er að alvar­legir ágallar voru á taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

„Kjörgögn voru ekki inn­sigluð eftir lok taln­ingar snemma morg­uns 26. sept­em­ber heldur skilin eftir á Hótel Borg­ar­nesi í sal hót­els­ins þegar
taln­inga­fólk fór heim. Varsla og eft­ir­lit á þeim tíma, sem leið frá
lokum taln­ingar og fram að end­ur­taln­ingu, þegar starfs­fólk mætti aftur
liggur ekki fyrir með full­nægj­andi hætti. Hótelið var opið og þar mátti
sjá gesti þegar end­ur­taln­ing fór fram. Hafi salnum verið læst var hann
ekki inn­sigl­aður og þá liggur ekki fyrir hver eða hverjir höfðu lykla að
umræddum sal,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Biðu ekki eftir umboðsmönnum

Enn fremur segir Magnús að end­ur­taln­ing atkvæða hafi haf­ist án þess að umboðs­mönnum á lista Pírata í kjör­dæm­inu hafi verið gert við­vart. „Formaður kjör­stjórnar varð síðan ekki við kröfu umboðs­manna að bíða með end­ur­taln­ingu þar til umboðs­menn kæmu á stað­inn.“

Fram­an­greind atriði eru að mati Magnúsar „háal­var­leg“ og „til þess falin að draga úr trú­verð­ug­leika taln­ing­ar­innar, sama hvort litið er til fyrri eða síð­ari taln­ing­ar­innar, starfa yfir­kjör­stjórnar í heild og þar með trú­verð­ug­leika kosn­ing­anna sem fram fóru í kjör­dæm­inu“. 

Endurtekning eina leiðin

Magnús segir ljóst að breyt­ing varð á fjölda ógildra og auðra seðla milli fyrri og síð­ari taln­ingar og sama eigi við um atkvæða­fjölda ein­stakra fram­boða. „Svona vinnu­brögð í lýð­ræð­is­legu ferli kosn­inga og taln­ingar eru algjör­lega óásætt­an­leg.“

Að mati Magnúsar er eina leiðin til að leysa úr þeirri stöðu sem hefur komið upp að end­ur­taka kosn­ing­arnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og „tryggja gagn­sæi og að farið sé eftir lögum og reglum“. „Það er sann­gjörn og rétt­mæt krafa okkar fram­bjóð­enda og ekki síst kjós­enda í kjör­dæm­inu,“ segir hann.

Karl Gauti kærir líka

Karl Gauti Hjalta­son, sem var í fram­boði fyrir Mið­flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur einnig ákveðið að kæra end­ur­taln­ingu atkvæða og með­ferð þeirra í Norð­vest­ur­kjör­dæmi til lög­reglu. Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

„Ég er að vinna að kæru til lög­reglu þar sem ég fer fram á að hún upp­lýsi atvik og atburða­rás varð­andi þessa end­ur­taln­ingu þarna í Norð­vestur,“ segir Karl Gauti í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár