544. spurningaþraut: Hver er þarna að leika Bubba Morthens?

544. spurningaþraut: Hver er þarna að leika Bubba Morthens?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir leik­ar­inn sem hér að ofan syngur hlut­verk Bubba Morthens í söng­leiknum um ævi hans?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hve mörg eru líf Bubba Morthens ann­ars talin vera í söng­leiknum þeim?

2.  Fyrir um það bil hve mörgum millj­ónum ára átti sér stað hin fræga fjölda­út­rým­ing risa­eðl­anna? Var það fyrir 266 millj­ónum ára, 216 millj­ónum ára, 166 millj­ónum ára, 116 millj­ónum ára, 66 millj­ónum ára eða 16 millj­ónum ára?

3.  Hvað heitir eini alþing­is­mað­ur­inn á Alþingi Íslend­inga sem á sína eigin kirkju?

4.  Í hvaða flokki er hann um þessar mundir?

5.  Kona ein var í tvo ára­tugi ein­hver fremsti ball­ett­dans­ari Íslend­inga. Eftir að hafa útskrif­ast frá London 1972 dans­aði hún í ára­tug í Þýska­landi við góðan orðstír en síðan í Banda­ríkj­unum, til dæmis sem aðal­dans­ari við Richmond-ball­ett­inn í Virginíu. Síðan var hún um skeið list­dans­stjóri Íslenska dans­flokks­ins og hefur lengi feng­ist við kennslu. Hvað heitir hún?

6.  Hvað heitir litla systir Emils í Katt­holti?

7.  Hver skrif­aði bæk­urnar um Emil í Katt­holti?

8.  Ákveðið fyr­ir­bæri er talið hafa komið fyrst við sögu í Jemen um árið 1500, þótt mjög þrá­látar sögur hermi að það hafi raunar komið fyrst til sögu handan Rauða hafs­ins í Eþíópíu. Hvað sem því líður breidd­ist það til­tölu­lega hratt út um Mið­aust­ur­lönd og síðan til Indlands og til Ítalíu var það komið um 1600. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?

9.  Risi, naut, örn og ... hver?

10.  Hver syngur tit­il­lagið í nýju James Bond-mynd­inni, No time to die?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Mál­verkið hér að neðan er kennt við landið eða þjóð­ina þar sem það var málað. Hverrar þjóðar eru sem sé fyr­ir­sæt­urnar tvær?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Níu.

2.  Fyrir 66 millj­ónum ára.

3.  Birgir Þór­ar­ins­son.

4.  Sjálf­stæð­is­flokknum.

5.  María Gísla­dóttir.

6.  Ída.

7.  Astrid Lindgren.

8.  Kaffi.

9.  Dreki. Þetta eru land­vætt­irnar í skjald­ar­merki Íslands.

10.  Billie Eilish. Smellið á rammann, þá kemur lagið þótt það þyk­ist ekki vera þarna.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­ar­inn er Jóhann Sig­urð­ar­son.

Mál­verkið heitir American Gothic og fyr­ir­sæt­urnar eru því banda­rískar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár