545. spurningaþraut: Hver lék fyrir Fukunaga?

545. spurningaþraut: Hver lék fyrir Fukunaga?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða leik­sýn­ingu frá 1982 er myndin hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var kon­ungur Íslands þegar Íslend­ingar gerð­ust lýð­veldi 1944? Númer verður að vera rétt.

2.  Hvaða starfi gegndi hinn svo­nefndi Caligula?

3.  Hver varð for­seti Rúss­lands á eftir Vladimir Pútin?

4.  Fyrir hvaða flokk situr Ingi­björg Ólöf Isaksen á þingi?

5.  HÚN: „Þeir segja að heima sé best.“ HANN: „Ég er sam­mála því.“ HÚN: „Þegar sólin er sest ...“ HANN: „... næ ég plöt­urnar í.“ BÆÐI: „Við erum mús­íkalskt par, sann­kall­aðir ...“ Ja, sann­kall­aðir hvað?

6.  Hver skrif­aði leik­ritið Makbeð?

7.  Við hvaða flóa stendur borgin Bordeaux?

8.  Hvað eru bólstrar og grá­blika?

9.  Cary Joji Fukunaga er ekki þekkt­asti kvik­mynda­leik­stjóri í heim­inum. Á því kann að verða breyt­ing nú, því einmitt núna er í gangi gríð­ar­lega vin­sæl kvik­mynd sem Fukunaga leik­stýrði. Hvað heitir sú mynd?

10.  Fukunaga hefur, svo vitað sé, aðeins leik­stýrt einum Íslend­ingi. Það var í gríð­ar­lega vin­sælli sjón­varps­s­eríu frá 2014 þar sem Íslend­ingur einn lék ill­úð­legt voða­menni í einum þætti en varð reyndar skamm­lífur, því hann nán­ast sprakk í loft upp. Hvaða íslenski leik­ari var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Flestir hafa séð mynd af fyr­ir­bær­inu á mynd­inni hér að neðan. En samt ekki svona mynd. Það vantar nefni­lega svo­lítið á mynd­ina, sem er þar venju­lega. Af hverju er þessi mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kristján tíundi.

2.  Keisari í Róma­veldi.

3.  Medvedev — árið 2008. Pútin varð svo aftur for­seti 2012.

4.  Fram­sókn­ar­flokk­inn.

5.  Djass­geggjarar. Sjá hér.

6.  Shakespe­are.

7.  Biscaya-flóa.

8.  Skýja­teg­undir.

9.  No Time to Die.

10.  Ólafur Darri.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­sýn­ingin er Salka Valka

Á neðri mynd­inni eru hins vegar Niagara-fossar í Banda­ríkj­unum þegar þeir voru þurrk­aðir upp að mestu í rann­sókna­skyni árið 1969. Hér að neðan má sjá svipað sjón­ar­horn eftir að foss­unum var hleypt á að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár