Oddviti Pírata búinn að kæra kosningarnar til Alþingis

Magnús Davíð Norðdahl hefur kært fram­kvæmd kosn­ing­anna til Alþingis og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Krefst Magnús þess að Alþingi úrskurði kosn­ingar í kjör­dæm­inu ógildar og fyr­ir­skipi upp­kosn­ingu.

Oddviti Pírata búinn að kæra kosningarnar til Alþingis
Vill upp­kosn­ingu Magnús Davíð dregur saman fjölda ann­marka á fram­kvæmd kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í kæru til Alþingis. Mynd: Heida Helgadottir

Magnús Davíð Norðdahl, odd­viti Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hefur sent Alþingi og dóms­mála­ráðu­neyt­inu kæru vegna fram­kvæmdar taln­ingar atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eftir kosn­ingar til Alþingis um liðna helgi. Krefst Magnús þess að Alþingi úrskurði kosn­ingar í kjör­dæm­inu ógildar og að upp­kosn­ing fari fram hið fyrsta.

Magnús krefst þess sömu­leiðis að Alþingi fresti því að úrskurða um kjör­bréf allra þing­manna Norð­vest­ur­kjör­dæmis, sem og um kjör­bréf upp­bót­ar­þing­manna. Um er að ræða sextán þing­menn alls, sjö kjör­dæma­kjörna þing­menn kjör­dæm­is­ins og níu upp­bót­ar­þing­menn í öllum kjör­dæmum.

„Eina leiðin til að leysa úr þeim vanda sem við blasir er að skipa nýja og hæfa yfir­kjör­stjórn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og end­ur­taka kosn­ing­arnar þannig að hafið sé yfir allan vafa að farið sé eftir lögum og reglum“

Beinir Magnús kærunni til Alþingis sökum þess að sam­kvæmt stjórn­ar­skrá er það Alþingis sjálfs að skera úr um hvort þing­menn séu lög­lega kosnir. Ástæða þess að kærunni er einnig beint til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er sú að í lögum um kosn­ingar til Alþingis er til­greint að kærum skuli beint til ráðu­neyt­is­ins. Hins vegar segir einnig í lög­unum að ráðu­neyt­inu beri að vísa slíkri kæru til Alþingis.

Ótal annmarkar á framkvæmdinni

Magnús heldur því fram í kærunni að allir fram­boðs­listar í kjör­dæm­inu hafi verið ólög­lega kosnir vegna anmarka við fram­kvæmd kosn­ing­ar­innar, eða öllu heldur við ann­marka á taln­ingu. Tiltekur hann helstu rök fyrir því, þau helst að kjör­gögn hafi ekki verið inn­sigluð að lok­inni taln­ingu sem skylt er sam­kvæmt lögum; að umboðs­manni Pírata, sem í þessu til­viki var Magnús sjálfur, hafi ekki verið gert við­vart um að ákvörðun hefði verið tekin um að end­ur­taln­ing atkvæða skyldi fara fram og hún hafin og henni haldið áfram þrátt fyrir mót­mæli hans og að Lands­kjör­stjórn hafi bókað að ekki hefði borist stað­fest­ing frá yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis um að með­ferð og varð­veisla kjör­gagna hafi verið full­nægj­andi.

Auk þessa bendir Magnús á að í fjöl­miðlum hafi verið fluttar fréttir af því að óvið­kom­andi aðili hafi kom­ist inn í taln­inga­sal­inn milli taln­inga og tekið myndir þar án þess að neinn úr yfir­kjör­stjórn hafi verið sjá­an­legur í salnum. Þá megi ráða það af fund­ar­gerð að aðeins for­maður kjör­stjórnar hafi verið við­staddur þegar kjör­gögn voru opnuð og taln­ing hafin að nýju. Sá sami for­maður, Ingi Tryggva­son, hafi þá ítrekað tjáð sig um það í fjöl­miðlum að fylgt hafi verið hefðum fremur en kosn­inga­lögum.

Telur Magnús að með því sem að framan er rakið hafi traust á úrslitum kosn­ing­anna tap­ast. „Eina leiðin til að leysa úr þeim vanda sem við blasir er að skipa nýja og hæfa yfir­kjör­stjórn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og end­ur­taka kosn­ing­arnar þannig að hafið sé yfir allan vafa að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sann­gjörn og rétt­mæt krafa fram­bjóð­enda og ekki síst kjós­enda í kjör­dæm­inu.“

Segir Magnús grafa undan trausti á alþingiskosningar

Í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í gær, undir heit­inu „Jafnvel ákafa­menn verða kunna sér hóf,“ var Magnúsi gefið að sök vera „fiska eftir því að fá fram nýjar kosn­ingar í „sínu kjör­dæmi““ vegna „meintra alvar­legra mis­taka“ af hálfu yfir­kjör­stjórnar í kjör­dæm­inu. Að mati þess sem leiðar­ann skrifar er Magnús að teygja sig „eins langt og hægt er“ til að tapa ekki í kosn­ing­unum. 

Þá er Magnús einnig sagður van­hæfur til að fjalla um málið. „Hann fékk 6,3% atkvæða í kosn­ing­unum og náði ekki kjöri. Nú er honum greini­lega kapps­mál að fá að reyna aftur og gengur harka­lega og ein­streng­is­lega fram með þá kröfu sína að alþing­is­menn ógildi kosn­ing­una.“

Gallarnir skipta ekki „raunverulegu“ máli

Til þess að end­ur­taln­ing komi til greina segir pistla­höf­undur að það þurfi að vera „veru­legir“ og „alvar­legir“ gallar sem „raun­veru­legu máli skipta“ á fram­kvæmd kosn­inga og taln­ingu atkvæða. „Ekkert slíkt [hefur] enn komið fram,“ segir í leið­ara. 

Gert er lítið úr þeim athuga­semdum að inn­sigla þurfi kjör­gögn áður en þau eru send áfram til réttra aðila. Þá segir skýrum stöfum að ekk­ert hafi komið fram sem bendi til þess að það hafi í raun verið ágalli á vinnu­brögðum yfir­kjör­stjórnar.

Leið­ara­höf­undur heldur því fram að það sé reynt að gera það tor­tryggi­legt að einn af hús­ráð­endum á kjör­stað hafi tekið mynd af kjör­gögnum óinn­sigl­uðum í taln­ing­ar­sal í lok taln­inga og að ekk­ert sé athuga­vert við hana.

Að lokum segir að það sé „alvar­legt mál að grafa undan trausti almenn­ings á alþing­is­kosn­ingum. Það sem fram hefur komið í þessu máli gefur ekk­ert til­efni til að það sé gert.“

Hagsmunir einstaka frambjóðenda

Í leið­ar­anum er á nokkrum stöðum vísað í pistil Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, sem hann birti á vef­síðu sinni í gær. Þar stað­hæfir Björn að Píratar og Mið­flokk­ur­inn hafi farið illa út úr kosn­ing­unum og þess vegna fari „fall­kandídatar“ þeirra mik­inn í því að „ala á tor­tryggni í garð þeirra sem bera ábyrgð á fram­kvæmd kosn­ing­anna og taln­ingu atkvæða í NV-kjör­dæmi“. 

Hann segir Magnús Davíð Norðdahl vera reyna að koma sér á þing með því að fara fram á að láta ógilda kosn­ing­una. „Í Kast­ljós­inu færði Magnús Davíð þetta hags­muna­mál sitt í þann bún­ing að vegna ágrein­ings um taln­ingu atkvæða í NV-kjör­dæmi í kosn­ingum sem leiddu til skýrrar nið­ur­stöðu af hálfu kjós­enda sé allt stjórn­kerfi þjóð­ar­innar í húfi,“ skrif­aði Björn.

Björn segir að vilji kjós­enda skipti mestu máli í kosn­ingum og Magnús sé að ganga gegn þeim vilja sem sínum rök­semd­ar­færlsum. Hann segir Magnús gefa ekk­ert fyrir það að Ingi Tryggva­son, for­maður yfir­kjör­stjórnar í kjör­dæm­inu, hafi byggt störf sín á hefð sem „gengi framan almennum lögum, í þessu til­viki kosn­inga­lögum.“

Að lokum segir Björn að örlög fram­bjóð­enda í jað­ar­sætum ráð­ist ekki af rann­sókn lög­reglu heldur „vilja kjós­enda“ og að vilji kjós­enda ráði ákvörðun þing­manna í þessu máli en ekki „hags­munir ein­stakra fram­bjóð­enda“.

Í öðrum pistli um sama efni segir Björn:

„Fljótræð­is­leg við­brögð þeirra sem eiga um sárt að binda vegna mann­legra mis­taka við atkvæða­taln­ingu duga ekki til að koll­varpa úrslitum kosn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurtalning í Norðvesturkjördæmi

Þingmenn sem brjóta lög
Þorvaldur Gylfason
PistillEndurtalning í Norðvesturkjördæmi

Þorvaldur Gylfason

Þingmenn sem brjóta lög

Saga helm­inga­skipta­flokk­anna og föru­nauta þeirra er löðr­andi í lög­brotum langt aftur í tím­ann. Ef menn kom­ast upp með slíkt fram­ferði ára­tug fram af ára­tug án þess að telja sig þurfa að ótt­ast afleið­ingar gerða sinna og brota­vilj­inn gengur í arf innan flokk­anna kyn­slóð fram af kyn­slóð, hvers vegna skyldu þeir þá ekki einnig hafa rangt við í kosn­ingum, spyr Þor­valdur Gylfason.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár